• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Meðaltekjur einstaklinga 6,9 milljónir í fyrra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. júlí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Heildartekjur 6,9 milljónir króna árið 2019

Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru um 6,9 milljónir króna að meðaltali árið 2019 eða að jafnaði 573 þúsund krónur á mánuði. Miðgildi heildartekna var um 5,6 milljónir króna á ári og var helmingur einstaklinga með heildartekjur undir 473 þúsund krónum á mánuði og helmingur yfir. Hækkun miðgildis á milli 2018 og 2019 var 0,9% sem er töluvert minni hækkun en síðustu ár.

Við samanburð á meðaltekjum eftir aldurshópum sést að heildartekjur ársins 2019 voru langlægstar í aldurshópnum 16 til 24 ára eða um 231 þúsund krónur á mánuði (sjá mynd 2). Í því samhengi er rétt að benda á að hér er um að ræða einstaklingstekjur og margir í þessum aldurshópi búa enn í foreldrahúsum. Þá voru heildartekjur hæstar fyrir aldurshópinn 55 til 74 ára eða að jafnaði 669 þúsund krónur á mánuði. Meðalheildartekjur 67 ára og eldri voru 517 þúsund krónur. Helmingur einstaklinga í þeim aldurshópi voru með um 410 þúsund krónur eða lægri heildartekjur á mánuði árið 2019.
Eins er áhugavert að skoða hvernig heildartekjur skiptast í atvinnutekjur, fjármagnstekjur og aðrar tekjur eftir aldurshópum. Í langflestum aldurshópum eru atvinnutekjur stærsti hluti heildartekna að undanskildum aldurshópunum 67 ára og eldri, þar sem aðrar tekjur vega mest. Til atvinnutekna teljast allar launatekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en til annarra tekna meðal annars atvinnuleysisbætur, félagsleg aðstoð og lífeyris- eða bótagreiðslur.

Um tekjutölfræði úr skattframtölum
Hagstofan hefur uppfært ítarlegt talnaefni um tekjur einstaklinga fyrir tímabilið 1990 til 2019 skipt eftir sveitarfélögum, aldri og kyni. Að þessu sinni hefur niðurbrot eftir aldri verið aukið. Talnaefnið inniheldur upplýsingar um heildar-, atvinnu-, fjármagns- og ráðstöfunartekjur ásamt öðrum tekjum og sköttum, bæði meðaltöl og miðgildi. Einnig má finna upplýsingar um dreifingu heildar- og atvinnutekna auk fjölda á bak við niðurstöður. Talnaefni um tekjur eftir menntun árið 2019 verður uppfært í haust.
Talnaefnið byggir á skattframtölum einstaklinga sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til ríkisskattstjóra. Undanskyldir eru þeir sem eru með handreiknað framtal, með áætlaðar tekjur, létust á árinu eða eru búsettir erlendis samkvæmt þjóðskrá. Gögnin eru samanburðarhæf á milli ára þar sem beitt er samræmdum aðferðum frá ári til árs en vakin er athygli á því að forskráning gagna í skattframtöl hefur aukið upplýsingagæði þeirra hin síðari ár sem getur haft áhrif á samanburð.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?