Karlmaður á sjötugsaldri var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 6. ágúst á grundvelli almannahagsmuna.
Var það gert að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á bruna á Bræðraborgarstíg síðari hluta júnímánaðar.
Rannsókninni miðar vel áfram en ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða