Hvetur fólk til að taka slátur og kaupa vörur af bændum
Guðmundur Franklín Jónsson kom víða við í þriðja vikulega pistli sínum á netinu þar sem hann fjallaði m.a. um kosningabaráttuna í Bandaríkjunum og kom þar með fróðlegar skýringar um hvernig baráttan gengur fyrir sig en aðeins þrjá vikur eru nú til kosninga.
Furðar sig á ummælum landbúnaðarráðherra og fyrrverandi formanni bændasamtakanna
Guðmundur Franklín Jónsson furðar sig á ummælum landbúnaðarráðherra og fyrrverandi formanni bændasamtakanna sem töluðu báðir niður til bænda. ,,Þeir lýstu störfum þeirra sem hobbýmennsku og að þetta væri bara lífstíll þeirra en varla atvinna“ sagði Guðmundur Franklín og hvatti hann fólk til að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum vegna ummæla þessara sjálfstæðismanna. ,,Ég hef bara aldrei vitað annað eins, tveir menn með þann bakgrunn sem þeir hafa, að láta svona lagað út úr sér og þeir meina það sem þeir segja“
Plottað með þingmannafrumvarp Kötu
,,Kata leggur fram þingmannafrumvarp á eigin vegum, því sjálfstæðis- og framsóknarflokkurinn geta ekki staðið á bak við frumvarpið, því þá mundu þeir styggja Samherja og hinar stórútgerðirnar og það þora þeir ekki fyrir sitt litla líf. En vitið til, það er búið að plotta með þetta allt á bak við tjöldin. Kata leggur frumvarpið fram og hinir stjórnarflokkarnir styðja það svo eins og búið er að ákveða nú þegar, þetta er bara plott á bak við tjöldin“ segir Guðmundur Franklín Jónsson
PISTILL DAGSINS – GUÐMUNDUR FRANKLÍN
https://www.facebook.com/watch/?v=748320819078252