,,Rökstyðjum við þessa ákvörðun okkar m.a. á 140 gr. og 141. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjalla skyldur opinberra starfsmanna í störfum sínum.“
Fulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins í borgarstjórn vilja að borgarstjórn vísi skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkur til Héraðssaksóknara til rannsóknar á grundvelli almennra hegningarlaga .
,,Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lýsir furðu sinni á því að borgarstjóri, borgarritari og borgarlögmaður hafi ekki vikið af fundi undir dagskrárliðunum. Þessir aðilar eru persónur og leikendur þegar kemur að braggamálinu. Kjörnir fulltrúar verða að hafa frelsi til beinna samskipta við skýrsluhöfunda í svo alvarlegum málum án áheyrnar þeirra sem um er fjallað í skýrslunni.“
Vigdís Hauksdóttir fulltrúi Miðflokksins, segir innri endurskoðanda hafa eftirlátið borgarfulltrúum úrvinnslu skýrslunnar og hún og Kolbrún Baldursdóttir fulltrúi Flokks fólksins, telji sig vera að bregðast ríku eftirlitshlutverki sínu sem kjörinna fulltrúa ef ekkert yrði aðhafst í kjölfar hennar.
,,Það er mjög nauðsynlegt ekki síst í ljósi þess að mikilvægt er að aðilar geti ekki samræmt framburð sinn eftir því hvernig spurningum borgarfulltrúa og svörum innri endurskoðunar framvindur.
Hér er upplýst að borgarfulltrúi Miðflokksins og og Flokks fólksins ætla að flytja tillögu á næsta borgarstjórnarfundi, sem haldinn verður þriðjudaginn 15. janúar n.k., um að vísa skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkur sem ber heitið Nauthólsvegur 100 til héraðssaksóknara til frekari yfirferðar og rannsóknar.
Innri endurskoðandi hefur eftirlátið borgarfulltrúum úrvinnslu skýrslunnar og teljum við okkur vera að bregðast ríku eftirlitshlutverki okkar sem kjörinna fulltrúa ef við myndum ekkert aðhafast í kjölfar hennar. Mjög alvarlegar athugasemdir og ábendingar eru í skýrslunni m.a. um alvarleg lögbrot sem of langt mál er að fara yfir í bókun þessari. Rökstyðjum við þessa ákvörðun okkar m.a. á 140 gr. og 141. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjalla skyldur opinberra starfsmanna í störfum sínum.“
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/01/07/braggamalid-er-rett-ad-byrja/
https://www.fti.is/2018/12/20/svort-skyrsla-um-braggamalid-sveitarstjornarlogum-innkaupareglum-starfslysingum-og-verkferlum-ekki-fylgt/
https://www.fti.is/2018/10/11/vigdis-hauksdottir-segir-innri-endurskodun-reykjavikurborgar-vanhaefa-til-ad-rannsaka-sig-sjalfa/