• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skattbreytingarnar eru bestar fyrir þá sem eru með yfir milljón á mánuði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. janúar 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

,,Tilgangur skattabreytinganna var aldrei að hygla þeim hæst launuðu. Þá eru óræddar þær ívilnanir sem eignafólk fær með lágum fjármagnstekjuskatti og auðlindagjöldum“

Kæru lesendur, gleðilegt ár og takk fyrir það liðna

Drífa Snædal fjallar um skatbreytingar ríkisstjórnarinnar

Um áramótin urðu þau gleðitíðindi að tekjumörk til að sækja um íbúðir hjá Bjargi íbúðafélagi voru rýmkuð til muna með breytingum á lögum. Nú hafa því töluvert fleiri möguleika á að fá úthlutað íbúðum í gegnum félagið. Fólk er hvatt til að kynna sér möguleikann hjá bjargibudafelag.is enda er lækkun húsnæðiskostnaðar ein besta kjarabót sem fólk getur fengið. Frekari tíðindi af húsnæðismálum er að vænta á þessu nýja ári enda hafa þau verið eitt af kjarnamálum síðustu ára.
Fleiri úrbætur urðu um áramótin og má þar helst nefna lenging fæðingarorlofs, sem var eitt af atriðunum í yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við undirritun kjarasamningana síðasta vor. Nú eru eyrnamerktir 4 mánuðir fyrir hvort foreldri fyrir sig og tveir til sameiginlegrar ráðstöfunar, samtals 10 mánuðir. Þetta mun hækka í 12 mánuði um næstu áramót. Það ber alltaf að hafa í huga í tengslum við fæðingarorlofsbreytingar að það er einmitt eitt helsta tæki til jafnréttis kynjanna sem hægt er að beita auk þess að vera sjálfsögð krafa barna að njóta óskertrar samveru við foreldra.
Skattkerfinu var breytt um áramótin auk barnabótakerfisins og urðu þau stórtíðindi að það er nú þriggja þrepa kerfi í stað tveggja. Það er ekkert launungarmál að vísasta leiðin til að jafna kjörin er að gera það í gegnum þrepaskipt skattkerfi. Breytingarnar núna hafa þau áhrif að fólk með tekjur undir 900 þúsund fær lækkun skatta á bilinu 2.000-4.500 krónur, mest er lækkunin hjá þeim sem eru með um 350 þúsund krónur í mánaðarlaun og frekari lækkun kemur næstu áramót. Hins vegar, vegna þess að kröfu verkalýðshreyfingarinnar um hátekjuþrep var ekki mætt, þá gagnast breytingarnar best þeim sem eru með yfir milljón á mánuði, þeir fá skattalækkun uppá tæplega fimm þúsund krónur.
Ríkisstjórn Íslands

Baráttunni fyrir sanngjörnu skattkerfi er hvergi nærri lokið!

Tilgangur skattabreytinganna var aldrei að hygla þeim hæst launuðu og stendur krafan um hátekjuskatt óhögguð til að við getum raunverulega jafnað kjörin í gegnum skatta. Þá eru óræddar þær ívilnanir sem eignafólk fær með lágum fjármagnstekjuskatti og auðlindagjöldum. Baráttunni fyrir sanngjörnu skattkerfi er því hvergi nærri lokið!
Ég get ekki orða bundist í þessum föstudagspistli að minnast Guðrúnar Ögmundsdóttur sem var kvödd við fallega athöfn á föstudagsmorgun. Hún var merkisberi kynslóðar sem menntaði sig meira en áður hafði þekkst, aflaði sér þekkingar á áður óþekktum sviðum, bar með sér ferska vinda til Íslands og kröfur um róttækar breytingar til jafnaðar og jafnréttis. Að lokum vann hún innan kerfisins að góðum breytingum, sem stjórnmálakona og starfsmaður í stjórnsýslunni.
Allt þetta gerði hún með væntumþykju og virðingu fyrir fólki og verkefnum. Ég naut sjálf samtals og stuðnings hennar frá því ég var kornung í Kvennalistanum og starfskona á fæðingardeildinni þar sem hún var félagsráðgjafi, í gegnum stjórnmál og þar sem leiðir okkar lágu saman í gegnum leik og störf alla tíð síðan. Árangri í störfum sínum náði hún í gegnum samtal og lagni og árangurinn er áþreifanlegur mörgum sem búa nú við betri og sanngjarnari stöðu en áður.
Við, sem samfélag, nutum þess að Guðrún barðist fyrir okkur og við sem þekktum hana erum betri manneskjur fyrir vikið.
Góða helgi, Drífa

Vantraust milli þings og þjóðar – ,,23% hafa hug á að kjósa flokkinn, verði hann stofnaður“

https://gamli.frettatiminn.is/2020/01/10/vantraust-milli-things-og-thjodar-23-hafa-hug-a-ad-kjosa-flokkinn-verdi-hann-stofnadur/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Vélhjólaslys

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    65 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Rannsókn á andláti

    358 deilingar
    Share 143 Tweet 90
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?