Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir desember má ætla að gistinætur á hótelum hafi verið um 198.400 þar af hafi gistinætur Íslendinga verið um 41.400 og gistinætur útlendinga um 156.900.
Í desember 2020 voru um 21.300 gistinætur en um 90% þeirra voru gistinætur íslendinga. Til frekari samanburðar má nefna að gistinætur á hótelum í desember 2019 voru 307.200, þar af voru gistinætur útlendinga 275.000. Gistinætur í desember 2021 eru því um 35% færri en þær voru 2019.
Samkvæmt sömu áætlun var rúmanýting í desember 2021 um 28,2% (95% öryggismörk: 26,5%-30,0%) samanborið við 5,1% í sama mánuði í fyrra og 43,2% árið 2019. Rúmnýting er á við það sem hún var í desember 2012 en þá var hún 27,3%.
Bráðabirgðatölur fyrir nóvember 2021 gerðu ráð fyrir að gistinætur hefðu verið um 251.800 (95% öryggismörk 240.000-263.700) en endanlegur fjöldi hótelgistinátta var 250.600. Í sömu útgáfu var gert ráð fyrir að rúmnýting hefði verið um 36,2% (95% öryggismörk: 34,5%-37,9%). Þegar búið var að vinna úr öllum tölum reyndist nýtingin vera 33,9% eða rétt undir öryggismörkum.
Miklar breytingar eiga sér nú stað á framboði á hótelrýmum og eykur það mjög óvissu í bráðabirgðamati á fjölda gistinátta. Fyrir vikið er rétt að taka áætluðum bráðabirgðatölum um fjölda gistinátta á hótelum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur eru birtar.