Bankastarfsmenn grunaðir um lögbrot

Bankastarfsmenn grunaðir um lögbrot við söluna á Íslandsbanka. Yfirvöld hafa umdeilda sölu á hlut ríkisins til skoðunar.

Trúverðugleiki frekari sölu undir að sögn þingmanns stjórnarandstöðunnar.

Sáttaferli er hafið milli Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins (FME) vegna hugsanlegra lögbrota Íslandsbanka þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut í bankanum í mars. FME hefur heimild til að leggja stjórnvaldssektir á bankann.

Í Fréttablaðinu í dag er fjallað ítarlega um bankasöluna sem hefur verið mjög umdeild í þjóðfélaginu eins og kunnugt er. Í fréttinni segir að fram hafi komið í kjölfar hins umdeilda útboðs um sölu bankans, að starfsmenn bankans voru meðal kaupenda í söluferlinu, í svokölluðu lokuðu tilboðsfyrirkomulagi. Athugasemdir voru gerðar um það atriði í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Ís­lands­banki sendi frá sér til­kynningu í gær til Kaup­hallarinnar um að bankinn kynni að hafa brotið gegn á­kvæðum laga

„Með öllum fyrirvörum þar sem upplýsingar eru takmarkaðar á þessu stigi tel ég afar mikilvægt að stjórnsýslan standi sig í þessu máli. Það er ekki síður mikilvægt að viðbrögð bankans verði góð,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Hún segir mikið í húfi fyrir Íslandsbanka en einnig fyrir ríkissjóð og í raun samfélagið allt. Frekari sala velti á að hægt verði að skapa trúverðugleika sem hafi misfarist hjá ríkisstjórninni við sölu bankans að því er fram kemur í fréttinni og þar segir jafnframt:

,,Ís­lands­banki sendi frá sér til­kynningu í gær til Kaup­hallarinnar um að bankinn kynni að hafa brotið gegn á­kvæðum laga og reglna um Ís­lands­banka og starf­semi hans við söluna. Fram kemur í til­kynningu bankans til Kaup­hallarinnar að stjórn­endur taki frum­mati FME í málinu al­var­lega.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem hefur gagnrýnt sleifarlag við söluna harðlega, sagðist í gærkvöld ætla að bíða með að tjá sig uns hún hefði aflað sér meiri upplýsinga. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra svöruðu ekki skilaboðum þegar leitað var eftir áliti þeirra rétt fyrir prentun Fréttablaðsins í gærkvöld.“

https://gamli.frettatiminn.is/09/04/2022/segja-oligarka-islands-fremja-bankaran/

https://gamli.frettatiminn.is/18/04/2022/eldraeda-sera-davids-myndband/

Umræða

Hæ!

Login to your account below

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?