• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 22. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Byssumaður fór inn um ólæstar dyr á heimili

ritstjorn by ritstjorn
10. febrúar 2023
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis

Rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi þann 21.08.2022 er lokið. Rannsóknin hefur leitt í ljós að árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola á Blönduósi og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis.

Hann sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði alvarlega. Árásarmaðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis.
Rannsókn hefur leitt í ljós að húsráðandi náði tökum á árásarmanninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.
Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.
Rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásarmaðurinn mætti vopnaður á heimili árásarþola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásarþola fyrir árásina.
Tilkynnt var um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þann 27.07.2022 þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum. Árásarmaðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðiskerfis. Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12.08.2022. Við rannsókn á skotárásinni kom í ljós að árásarmaðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásarþola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.
Rannsóknin á skotvopninu hefur leitt í ljós að haglabyssan var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota árið 2008. Þrjár haglabyssur voru enn skráðar á fyrirtækið; byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88 haglabyssa sem er ófundin.
Málið var afhent embætti héraðssaksóknara til ákvörðunar í dag.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra veitir ekki frekari upplýsingar um málið.
  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Greiða hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mikilvægum áfanga náð í undirbúningi Sundabrautar

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?