Flugstjóri eþíópísku farþegaþotunnar sem hrapaði í morgun með 157 manns innanborðs hafði óskað eftir leyfi til að snúa vélinni við skömmu eftir flugtak vegna vandræða með vélina. Hann hafði fengið leyfi frá flugturninum í Addis Ababa til að lenda. Vélin tók á loft um hálf níu að staðartíma í morgun en vélin missti samband við flugturninn um sex mínútum síðar.
Farþegar með vegabréf frá 32 löndum og Sameinuðu þjóðunum voru meðal þeirra sem fórust í flugslysinu.
Flestir voru frá Kenía eða 32 samtals en í flugvélinni voru einnig kanadískir ríkisborgarar, ítalskir, kínverskir, breskir, hollenskir, bandarískir og einn Norðmaður.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum hefur boðið fram aðstoð sína við rannsókn slyssins. Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, vottaði í morgun ættingjum þeirra sem fórust samúð sína.