Hugleiðingar veðurfræðings
Í nótt myndaðist dálítil lægð á Grænlandshafi og þokast hún austur á bóginn í dag og dýpkar. Úrkomusvæði lægðarinnar nálgast landið og gengur í vestankalda með snjókomu eða slyddu á vesturhelmingi landsins eftir hádegi. Vestlægari vindar og bjartviðri eystra, en talsvert frost. Hlýnar smám saman í veðri og víða kringum frostmark er líður á daginn. Í fyrramálið er lægðin komin skammt út af Faxaflóa og ríkja því austan- og suðaustanáttir á landinu með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum. Á mánudag dregur heldur úr vindi og rofar til, en eimir áfram eftir af vætunni suðaustan til.
Veðuryfirlit
Skammt SA af Svalbarða er víðáttumikið 983 mb lægðasvæði sem fer hægt A, en 900 km SSV af Reykjanesi er 1034 mb hæð sem þokast SA. Á Grænlandssundi er vaxandi lægðardrag sem fer SA. Samantekt gerð: 10.04.2021 13:58.
Veðurhorfur á landinu
Suðlæg átt 3-10 m/s seinnipartinn og snjókoma eða rigning með köflum vestantil á landinu með hita um eða yfir frostmarki. Léttskýjað á austurhelmingi landsins og frost 0 til 8 stig.
Suðaustan og austan 5-13 og rigning eða slydda á morgun, en úrkomulítið um landið NA-vert. Dregur úr úrkomu síðdegis, og gengur í norðaustan 10-15 NV-lands. Hiti 0 til 5 stig. Spá gerð: 10.04.2021 10:19. Gildir til: 12.04.2021 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðlæg átt 3-8 m/s og slydda eða rigning af og til seinnipartinn. Suðaustan 8-13 og rigning með köflum á morgun, en hægari og styttir upp annað kvöld. Hiti 1 til 5 stig.
Spá gerð: 10.04.2021 10:30. Gildir til: 12.04.2021 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og þurrt að kalla, en 8-13 og skúrir syðst á landinu. Léttir víða til á N-verðu landinu með deginum. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn.
Á þriðjudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt og dálitlar skúrir eða slydduél. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Suðvestan 8-13 og þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig.
Á fimmtudag:
Suðaustanátt og rigning, einkum SA-lands. Hlýnar í veðri.
Á föstudag:
Suðlæg átt og dálítil væta með köflum. Áfram milt í veðri.
Spá gerð: 10.04.2021 08:19. Gildir til: 17.04.2021 12:00.