Anna Kolbrún Árnadóttir, sem var alþingismaður Norðausturkjördæmis síðastliðið kjörtímabil fyrir Miðflokkinn, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gærmorgun.
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, greindi frá þessu við upphaf þingfundar í dag. Önnu Kolbrúnar verður minnst við upphaf þingfundar næstkomandi mánudag.
Anna Kolbrún, sem var 53 ára, var varaþingmaður Miðflokksins á þessu kjörtímabili.
Umræða