Á síðasta ári greiddi ríkið samskiptafyrirtækinu Aton JL næstum 100 milljónir fyrir auglýsinga- og ráðgjafarþjónustu. Fyrirtækið starfar nú fyrir forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og tengiliður þess við framboð Katrínar er margfaldur trúnaðarmaður Vinstri grænna.
Þetta kemur fram í frétt hjá Pressunni og þar segir einnig að ,,Aton JL sjái um útlit og hönnun fyrir framboðs Katrínar Jakobsdóttur til forseta. Eigandi þriðjungshlutar í Aton JL, Huginn Freyr Þorsteinsson, sem er tengiliður fyrirtækisins við forsetaframboðið.
Er jafnframt stjórnarformaður Gallup
Huginn Freyr er jafnframt stjórnarformaður Gallup, sem er í eigu Hamarshyls. Þá átti hann sæti í kjörstjórn Suðvesturkjördæmis en sagði sig úr kjörstjórninni í mars sl., nokkrum vikum áður en Katrín Jakobsdóttir tilkynnti afsögn sína sem forsætisráðherra og framboð til forseta. Kjörstjórnarmaður getur vitanlega ekki tengst framboði neins frambjóðanda og þykir þetta gefa sterklega til kynna að ákvörðun Katrínar um forsetaframboð hafi legið fyrir mun fyrr en hún hefur sagt opinberlega.
Huginn Freyr hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum á vegum Vinstri grænna. Hann var aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og þá aðstoðaði hann Svavar Gestsson er hann var sérlegur samningamaður ríkisstjórnarinnar um Icesave, en sem kunnugt er felldi þjóðin þá Icesave samninga tvívegis í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fengið talsverðar greiðslur frá ráðuneytum og ríkisstofnunum frá því ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum
Aton JL hefur fengið talsverðar greiðslur frá ráðuneytum og ríkisstofnunum frá því ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum í desember 2017 og fram til loka mars á þessu ári. Þessar greiðslur nema samtals 129,4 milljónum á þessu sjö og hálfs árs tímabili samkvæmt upplýsingum úr Opnum reikningum ríkisins.
Frá 1. janúar 2023 fram til 31. mars á þessu ári, eða á 15 mánaða tímabili, námu greiðslurnar frá ráðuneytum og stofnunum ríkisins til Aton JL 93 milljónum króna og fyrstu þrjá mánuði þessa árs greiddi ríkið Aton JL 17,5 milljónir króna.“