Matvælastofnun barst tilkynning frá Samherja Fiskeldi mánudaginn 6. maí 2024 um óhapp sem gæti hafa leitt til stroks eldislax úr fiskeldisstöð þeirra í Silfurstjörnunni, Öxarfirði.
Strokið uppgötvaðist við eftirlit starfsmanna 6. maí er seiði sáust í settjörn stöðvarinnar. Seiðin voru u.þ.b. 70-80 gr. og ósmoltuð. Ekki er hægt að útiloka að seiðin hafi smoltast í settjörn og komist út í sjó. Áætlað er að 868 seiði hafi sloppið úr karinu en fjöldi þeirra seiða sem barst í settjörnina er óljós á þessum tímapunkti. Rekstrarleyfishafi vinnur að endurheimt fiska úr settjörn og nákvæmari talningu til þess að meta umfang stroksins.
Matvælastofnun hefur kallað eftir gögnum og upplýsingum er varða viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til rannsóknar hjá stofnuninni.
Umræða