Þrír eru látnir og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með þyrlum Landhelgisgæslunnar eftir flugslys við Múlakot í Fljótshlíð á Suðurlandi í gærkvöld. Að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi er líðan þeirra slösuðu stöðug. Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.
Laust eftir klukkan 20:30 í gærkvöld barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð. Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru þá þegar á staðinn og voru m.a. tvær þyrlur, TF-LIF og TF-EIR, sendar á vettvang vegna alvarleika slyssins.
Alls voru fimm aðilar í flugvélinni og eru allir sagðir mjög alvarlega slasaðir en rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fór með rannsókn málsins og naut aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.
Viðbragsteymi Rauðakross Íslands var sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning og áfallahjálp