Árétting vegna fréttaflutnings af smiti og smitleiðum E. coli sýkinga í Efstadal 2
Í fréttum og viðtölum við staðarhaldara á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í gær 9.7.2019 um smit og smitleiðir E. coli (STEC) á bænum mátti skilja, að rannsóknarniðurstöður hafi sýnt að börnin sem sýktust á bænum hafi smitast vegna umgangs við kálfa en ekki af neyslu matvæla á bænum. Vegna þessa viljum við árétta eftirfarandi:
- Bakteríurannsóknir sýndu að kálfar á staðnum báru sömu bakteríur og sýktu börnin.
- Helmingur barnanna hafði ekki verið í tengslum við kálfa á staðnum.
- Það eina sem öll börnin níu áttu sameiginlegt var neysla íss í Efstadal 2 en tíunda barnið smitaðist af systkini.
- Þær bakteríur sem sýktu börnin fundust ekki í ís á staðnum en sá ís var ekki hinn sami og börnin höfðu borðað þar sem ný framleiðsla var komin í sölu.
- Fleiri bakteríurannsóknir standa nú yfir m.a. á starfsfólki staðarins.
Af ofangreindu má því sjá að ekki er hægt að fullyrða að börnin hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.
.
Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast einmitt að því að rjúfa þessar smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti. Nánari upplýsingar um aðgerðir og ráðstafanir í Efstadal 2 má fá hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Matvælastofnun.
Sóttvarnalæknir hefur einnig sett sig í samband við Safetravel.is og Samtök ferðaþjónustunnar um að koma nauðsynlegum upplýsingum til ferðamanna sem heimsótt hafa Efstadal 2 og kunna að hafa smitast. Einnig hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) verið upplýst eins og alþjóðalög kveða á um.
Umræða