Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi rétt í þessu frá alvarlegum veikindum dóttur sinnar.
,,Kæru vinir, nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng krabbameinsmeðferð. Mitt verkefni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta er stærsta verkefni lífs míns.
Ég ætla, með hjálp samstarfsfólks og fjarfunda, að sinna áfram störfum heilbrigðisráðherra og mun skipuleggja mína vinnu á næstunni í samræmi við breyttar aðstæður.
Vísa má í þessa færslu en ég mun ekki fjalla meira um þetta mál opinberlega að svo stöddu.“
Umræða