Opnað hefur verið fyrir rafræna söfnun meðmæla með framboðslistum og umsóknum um listabókstafi stjórnmálasamtaka á Ísland.is.
Rafræn söfnun meðmæla er nýr valkostur fyrir stjórnmálasamtök en jafnframt verður áfram unnt að safna meðmælum á pappír eins og venjan hefur verið hingað til. Með rafrænni söfnun meðmæla er aðgangur að meðmælasöfnun einfaldaður og söfnunin gerð aðgengilegri bæði fyrir meðmælendur og stjórnmálasamtök.
Þau sem vilja mæla með framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar eða umsókn um listabókstaf stjórnmálasamtaka fara inn á hlekkinn „Mæla með framboðslista“ á forsíðu vefsins island.is, fylgja þar leiðbeiningum og auðkenna sig rafrænt innr á Mínum síðum á Ísland.is með rafrænum skilríkjum.
Rafræn söfnun meðmæla byggir á sérstakri heimild í lögum um kosningatil Alþingis skv. frumvarpi dómsmálaráðherra sem samþykkt var á Alþingi vorið 2021.
Upplýsingasíða island.is um alþingiskosningar 2021