Maðurinn sem ekið var á í miðbæ Akureyrar í gær er látinn. Þetta segir í tilkynningu sem Lögreglan á Norðurlandi eystra birti á Facebook.
Ekið var á gangandi vegfaranda í miðbæ Akureyrar í gær. Vegfarandinn var karlmaður á áttræðisaldri sem lést af áverkum sínum á Sjúkrahúsi Akureyrar síðdegis í dag. Vegfarandinn var að ganga yfir götu þegar ekið var á hann. Málið er í rannsókn hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra,“ segir í tilkynningunni.
Umræða