,,Nú þarf að standa vörð um Harald Johannessen, ríkislögreglustjóra. Litla stúlkan með eldspíturnar var sérstaklega ráðin í stöðu dómsmálaráðherra til að reka Harald. Hann er nefnilega fyrir þessu fólki sem vill ganga í ESB og fara úr Schengen.“ Segir Guðmundur Franklín Jónsson á vef sínum um það uppþot sem varð hjá lögreglunni á dögunum. En dómsmálaráðuneytið hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun framkvæmi heildarúttekt á embætti ríkislögreglustjóra.
Tilefni ummælanna er frétt RÚV þar sem kemur fram að Dómsmálaráðherra líti deilu ríkislögreglustjóra og lögregluembætta í landinu alvarlegum augum og segir að leysa verði málið hratt. Sagt hefur verið að embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra í landinu hafa lent í hár saman, meðal annars vegna bíla- og fatamála lögreglunnar.
„Það er einhugur um að skoða þetta og ég er að fara í það,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra í viðtali við RÚV og segir að „Það komi í ljós“ hvað hún muni gera og að ,,það þurfi allt helst að gerast hratt.“
Jafnframt var Áslaug spurð um hvort komið hefði til tals að semja um starfslok við ríkislögreglustjóra? „Við erum að skoða þetta.“