Fimm skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hver þeirra rétt tæpar 220 þúsund krónur. Tveir miðanna eru í áskrift, tveir voru keyptir á lotto.is og einn í Krambúðinni á Selfossi.
Þá voru fjórir með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í appinu, á lotto.is, Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi og einn er í áskrift.
Heppinn miðahafi var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmlega 77,4 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Lottó-appinu.
Umræða