Innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Kadeco, Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum standa sameiginlega að opnum fundi um góðar og umhverfisvænar samgöngur milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Ræða á sameiginlega framtíðarsýn, raunhæfni og mögulegar lausnir á þeim áskorunum sem blasa við. Erlendir gestafyrirlesarar gefa innsýn í svipuð verkefni sem borgir í Evrópu hafa ráðist í og einnig verður tekinn púls á þeim möguleikum sem bjóðast hjá aðilum sem vinna um allan heim að stórum innviðaverkefnum með áherslu á vistvænni samgöngur.
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu, verður með erindi og Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri samgangna hjá innviðaráðuneytinu, tekur þátt í pallborðsumræðum.
Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 12. október, milli kl. 13 – 17.
Nánari upplýsingar og skráningu er að finna á dagskrársíðu viðburðarins: Opinn fundur um samgöngur til KEF.
Dagskrá:
- 13:00-13:05 Velkomin | Fundarstjóri Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
- 13:05-13:20 Hágæðasamgöngur fyrir heimsborg | Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- 13:20-13:35 Í átt að öflugri og kolefnishlutlausum almenningssamgöngum til Keflavíkurflugvallar | Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu
- 13:35-13:50 Þróunaráætlun Kadeco K64 – Keflavik Reykjavik Link KRL | Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri hjá Kadeco
- 13:50-14:05 Sagan og staðan – flugrúta, fluglest og fleiri hugmyndir | Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
- 14:05-14:35 Pallborð: Hver eru næstu skref?
Þátttakendur í pallborði:
– Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
– Árni Freyr Stefánsson, innviðaráðuneytið
– Samúel Torfi Pétursson, Kadeco
– Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðin.
Umræðustjóri: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
- 14:35-14:50 Hlé
Dagskrá eftir hlé mun fara fram á ensku
- 14:50-15:10 Val á samgöngulausnum – flugvallartengingar og reynslusögur | Thomas Potter, technical expert, Norconsult heldur erindi á ensku
- 15:10-15:25 Grænni og snjallari samgöngur um allan heim | Carl Åge Björgan, framkvæmdastjóri Alstom í Noregi og Íslandi heldur erindi á ensku
- 15:25-15:45 Tengingin milli Helsinki og Vantaa flugvallarins | Henry Westlin, borgarverkfræðingur Vantaa heldur erindi á ensku
- 15:45-16:10 Pallborð: Hvernig gæti framtíðin litið út?
Þátttakendur í pallborði:
– Thomas Potter,
– Carl Åge Björgan og
– Henry Westlin.
Stjórnandi: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur.
Seinni pallborðsumræður fara fram á ensku.
- 16:10-16:15 Lokaorð
- 16:15-17:00 Tengslamyndun og léttar veitingar