Matvælastofnun barst tilkynning frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðuveiki.
Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr þriggja vetra á frá bænum Eiðsstöðum í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi. Búrekstur á Eiðsstöðum er sameiginlegur með nágrannabænum Guðlaugsstöðum. Heildarfjöldi kinda á bæjunum er um 700. Riða greindist á Guðlaugsstöðum síðast árið 1993.
Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað á næstu dögum og féð arfgerðargreint. Í kjölfarið verða teknar ákvarðanir um aðgerðir.
Upplýsingasíða Matvælastofnunar um riðu
Frétt frá 11. desember um nýja nálgun á aðgerðum gegn riðu
Umræða