Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á varðskipinu Tý, sigraði í ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum. Þetta er í annað sinn sem Guðmundur sigrar í keppninni.
Ljósmyndin sem Guðmundur kallar Gömul vísindi og ný sigraði einnig í ljósmyndakeppni sjómannablaðsins Víkings í fyrra. Úrslitin voru kunngjörð í dag en Guðmundur vann keppnina einnig fyrir sex árum, fyrstur Íslendinga. Landhelgisgæslan nýtur góðs af ljósmyndaáhuga Guðmundar sem hefur tekið myndir af starfsemi Landhelgisgæslunnar í fjölmörg ár.
Vinningsmyndin var tekin þegar áhöfn varðskipsins Týs kom að stórum ísjaka en við það tækifæri rifjaði Thorben Lund, sem var skipherra í ferðinni, upp gömul fræði og staðfesti mælingar á ísjakanum með gamalli aðferð.