• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kristín Ólafsdóttir ráðin sem framkvæmdastjóri Pieta samtakanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. febrúar 2019
in Ferðaþjónusta
A A
0

Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Pieta samtakanna á Íslandi. Kristín er menntuð í viðskiptum og með LLM próf í mannúðar- og mannréttindalögfræði. Hún hefur undanfarin ár sinnt margvíslegum stjórnunarstörfum og setið í stjórn ýmissa samtaka og félaga. Kristín tekur við starfinu af Sirrý Arnardóttur.
Kristín segir að hún sé spennt fyrir komandi verkefnum. „Miðað við stöðuna í dag þá er starfsemi Píeta samtakanna nánast kraftaverk. Gott fólk í öllum stöðum. Á innan við ári er þjónusta við þá sem eru í sjálfsvígshættu eða stunda sjálfskaða vel mótuð og augljóst er að þörfin er mikil. Yfirlýsing Pieta samtakanna er einstaklega falleg og á erindi til okkar allra:
„Ég vil vera til staðar fyrir alla sem líður illa og leita til mín. Ég ætla ekki að standa aðgerðarlaus hjá ef mig grunar að einhver nálægt mér glími við vanlíðan og gera mitt besta til að aðstoða, án þess þó að ganga of nærri mér eða viðkomandi – en hvetja hann/hana til að leita aðstoðar sérfræðinga ef þurfa þykir. Enginn ætti að burðast einn með sársauka.“
Samtökin opnuðu þjónustu sína vorið 2018 og eru með starfsemina að Baldursgötu 7 í Reykjavík.  Til Píeta samtakanna geta leitað einstaklingar og aðstandendur sem vilja fá hjálp og viðtal hjá fagfólki.
„Meðferð okkar er mótuð af samúð og virðingu fyrir hverjum þeim sem til okkar leitar og áhersla lögð á lausnir og uppbyggingu. Miðað er að því að leysa yfirstandandi krísu með viðkomandi og glæða von um líf sem er þess virði að lifa. Kennd eru ýmis bjargráð til að fást við erfiðar tilfinningar ásamt streitu- og tilfinningastjórnun og samskiptafærni. Gefinn er kostur á allt að 15 viðtölum, en þörfin er metin í hverju tilviki fyrir sig. Þegar við á er fjölskyldu og/eða nánustu aðstandendum boðið að taka þátt í meðferðinni, með það að markmiði að styrkja stuðningsnet einstaklingsins. Gefinn er kostur á allt að 5 viðtölum fyrir aðstandendur. Meðferðin er skjólstæðingum að öllu gjaldfrjáls og það sem mér finnst hvað merkilegast er að þetta er fjarmagnað af framlögum frá fólki eins og mér og þér og fallegum félagasamtökum“.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?