• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snæbjörn Brynjarsson segir af sér sem varaþingmaður Pírata

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Snæbjörn Brynjarsson hefur ákveðið að segja af sér sem varaþingmaður Pírata vegna óviðeigandi hegðunar gagnvart Ernu Ýr Öldudóttur, blaðamanni hjá Viljanum og fyrrverandi formanni framkvæmdaráðs Pírata, á skemmtistað í Reykjavík um síðustu helgi. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Ernu Ýr hafi þótt ummæli sem Snæbjörn lét falla „óþægileg og ógnandi“.
.

Snæbjörn sendi frá sér yfirlýsingu á facebook í kjölfarið. Þar segist hann hafa misst stjórn á skapi sínu og sagt hluti sem „voru með öllu óviðeigandi“. Sú hegðun sem hann hafi sýnt sé ekki sæmandi kjörnum fulltrúa. Hann muni axla fulla ábyrgð á gjörðum sínum, biðji alla hlutaðeigandi afsökunar og voni að sem minnstur skaði hafi hlotist af. 

Snæbjörn segist hafa ákveðið að segja af sér tafarlaust sem varaþingmaður Pírata fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður og víkja úr öllum ábyrgðarstöðum sem Píratar hafi falið honum.
Eftirfarandi er færsla Snæbjörns á facebook: ,,Aðfararnótt laugardags rakst ég á Ernu Ýr Öldudóttur, blaðamann og fyrrverandi formann framkvæmdaráðs Pírata, á skemmtistað í Reykjavík. Ég missti stjórn á skapi mínu og sagði hluti við hana sem voru með öllu óviðeigandi. Sú hegðun sem ég sýndi umrætt kvöld er ekki sæmandi kjörnum fulltrúa. Ég mun axla fulla ábyrgð á gjörðum mínum og bið alla hlutaðeigandi afsökunar og vona að sem minnstur skaði hafi hlotist af.

Í ljósi atburða liðinnar helgar hef ég því ákveðið að segja af mér sem varaþingmaður Pírata, frekar en að láta þessa hegðun kasta rýrð á samstarfsfélaga mína og Alþingi. Mér er annt um virðingu Alþingis, traust fólks á kjörnum fulltrúum, en sér í lagi er mér annt um þau þúsundir manna sem kusu Pírata og öll þau hundruð sem lögðu á sig þrotlausa sjálfboðavinnu til að tryggja mér kjör.

Af virðingu fyrir því umboði sem allt þetta fólk veitti mér hef ég ákveðið að segja af mér tafarlaust sem varaþingmaður Pírata fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður og víkja úr öllum ábyrgðarstöðum sem Píratar hafa falið mér. Ég ætla mér að læra af þessum mistökum og biðst innilega afsökunar á hegðun minni.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?