• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 aflétt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 verður aflétt frá og með morgundeginum 12. febrúar með gildistöku nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir. Breytingin felur í sér rýmkun á sóttvarnareglum, fjöldatakmörk verða 200 manns og heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.

Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.

Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.

Nýja reglugerðin um takmörkun á samkomum gildir til og með 25. febrúar.

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:

  • Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undantekningum til rýmkunar.
  • Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
  • Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
  • Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
  • Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
  • Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
  • Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.

Nánari upplýsingar:

  • Reglugerð um einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19
  • Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
  • Minnisblað sóttvarnalæknis
Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Traust til Seðlabankans er hrunið

    Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    123 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?