Varðandi umferðarslysið hér að neðan þá koma hér viðbótarupplýsingar
Fjórir aðilar fluttir á slysadeild til aðhlynningar með sjúkrabifreið. Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða. Tvö ökutæki voru flutt af vettvangi með dráttarbifreið enda óökuhæfar.
Laust fyrir kl.17:00 í dag varð þriggja bifreiða árekstur á Sæbraut/Dalbraut samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Minniháttar slys urðu á ökumönnum og farþegum samkvæmt fyrstu upplýsingum.
Ekki er ljóst hvort slösuðu voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild þar sem vinna er enn í gangi á vettvangi. Miklar skemmdir urðu á ökutækjum og sumar þeirra óökufærar.
Umræða