Laust fyrir kl.17:00 í dag varð þriggja bifreiða árekstur á Sæbraut/Dalbraut samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Minniháttar slys urðu á ökumönnum og farþegum samkvæmt fyrstu upplýsingum.
Ekki er ljóst hvort slösuðu voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild þar sem vinna er enn í gangi á vettvangi. Miklar skemmdir urðu á ökutækjum og sumar þeirra óökufærar. Nánari upplýsingar um slysið verða sendar síðar í dag.
Umræða