Eins og öllum er kunnugt, hafa kaupmenn við Laugaveg, Hverfisgötu, Lækjargötu og reyndar fleiri götur í miðborginni kvartað mikið undan aðgerðum Reykjavíkurborgar undanfarin ár, t.d. vegna lokunnar á Laugavegi fyrir bílaumferð ofl. Þá hafa rótgrónar verslanir sem að hafa verið til áratuga við Laugaveginn, flúið þaðan og í önnur hverfi eins og t.d. Múlahverfið eða hreinlega hætt rekstri vegna ósættis við Reykjavíkurborg.
Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi Miðflokksins, vekur athygli á málinu:
Fundur Skipulags og samgönguráðs í gær:
Fyrirvaralaust ákveðið að breyta akstursstefnu á hluta Laugavegs:
Engin umræða – Ekkert samráð – Engin sátt
Sem sagt sömu vinnubrögð og venjulega……
Skiptingin skal vera við Frakkastíg, svo þar verður tilvalið að tylla sér með popp og kók næsta misserið og fylgjast með þegar bílar koma niður Laugaveg annars vegar og upp hins vegar….
Vera má að borgarstjóri telji að með þessu sé hann að bjóða upp á ókeypis skemmtun fyrir latté-trefla bæjarins, en fyrir okkur hinum blasir við hringavitleysan.
Hér er bókunin í heild sinni sem skýrir hvers vegna svona er komið:
Miðflokkurinn harmar sem fyrr, að ekki hafi verið haft samráð við hagsmunaaðila, íbúa og rekstraraðila, við ákvörðunartöku um að varanlegar göngugötur.
Yfirlýsing borgarstjóra á fundi borgarstjórnar 4.sept. síðastliðinn um að Laugavegur skyldi verða göngugata frá Hlemmi vekur sérstaka eftirtekt, enda myndi slíkt þýða að aðkoma að 200 stæða bílastæðahúsi Bílastæðasjóðs borgarinnar lokast. Gerræðislegar yfirlýsingar sem þessi eru ekki merki um að samráð og sátt við menn og þjóð sé ofarlega á baugi hjá borgarstjóra enda hefur nú verið ákveðið að svara í engu fjölda athugasemda og undirskriftalistum er málið varða.
Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar gerræðisleg vinnubrögð eru viðhöfð.
Slíkt kallar á röð vandamála og tillagan sem hér er til umfjöllunar skýrt dæmi um það:
Lagt er til að aksturstefnu á hluta Laugavegs verði breytt!
Fyrivaralaust og sem fyrr án nokkurs samráðs!
Enging umræða – Ekkert samráð.
Miðflokkurinn mótmælir slíkum vinnubrögðum sem eru með öllu ólíðandi.
Krafa okkar um vinnulag hvað varðar breytingar er einföld:
Umræða-Samráð-Sátt Þetta vinnulag þekkja góðir stjórnendur en slæmir ekki.
Sá misskilningur hrjáir borgarstjóra að telja sig í síðustu kosningum hafa fengið umboð kjósenda til að framfylgja vilja sínum.
Svo er ekki, hann fékk umboð til að framfylgja vilja kjósenda.
Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi Miðflokksins
P.s. myndin sýnir stemmaran í Lækjargötu þessi misserin, stal henni af síðu Sigmundar Davíðs