,,Það er hverjum manni ljóst að 248 þúsund krónur fyrir skatt duga engum til að lifa mannsæmandi lífi“
Svokallaður „Lífskjarasamningur“ var undirritaður á dögunum, milli stéttarfélaga á almenna markaðnum og Samtaka atvinnulífsins. Íslenska ríkið lagði eitt og annað í púkkið. Öryrkjar bíða enn eftir því að vita hvaða þýðingu aðkoma ríkisins hefur. Ljóst er að lækkun skatta á lægstu laun skiptir máli, en spurning er hvaða aðrir þættir í innleggi stjórnvalda koma örorkulífeyrisþegum til góða og hvað stjórnvöld hyggjast gera að auki.
Víst er að ÖBÍ liggur ekki á liði sínu í þessum efnum. Formaður ÖBÍ hefur þegar óskað eftir upplýsingum frá stjórnvöldum um áhrif samninganna á öryrkja.
Það er hverjum manni ljóst að 248 þúsund krónur fyrir skatt duga engum til að lifa mannsæmandi lífi. Þannig hafa bæði formaður og varaformaður ÖBÍ talað um þessi mikilvægu mál í viðtölum og greinum í fjölmiðlum. Í lögum um almannatryggingar er skýrt ákvæði um að framfærsla öryrkja fylgi launaþróun. Ekki er hins vegar að sjá að stjórnvöld ætli sér að fylgja lögum í landinu. Sem dæmi má nefna að ríkisstjórnin beitti sér fyrir ríflegri hækkun atvinnuleysisbóta. Það er vitaskuld mikilvægt og gott fyrir þau sem missa vinnuna, en um leið er sorglegt að sjá okkar hóp enn sitja á hakanum hjá stjórnvöldum