Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 101 þúsund í nýliðnum marsmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Í sögulegu samhengi þá er um að ræða fimmta fjölmennasta marsmánuðinn frá því mælingar Ferðamálastofu hófust en brottfarir nú voru litlu færri en 2016.
Ríflega fjórðungur brottfara (27,6%) var tilkominn vegna Breta en brottfarir þeirra voru tæplega 28 þúsund í mars. Bretar hafa lengst af verið fjölmennasta þjóðernið í mars eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar árið 2002. Undantekningar frá þessu eru árin 2017, 2018 og 2019 en þá voru Bandaríkjamenn fjölmennastir. Brottfarir Íslendinga í mars voru um 34 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um þrjú þúsund.
Nánari upplýsingar má finna á vef Ferðamálastofu:
https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/101-thusund-brottfarir-erlendra-ferdamanna-i-mars
Umræða