• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 9. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna

MFA/ Karl Melander - María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna hjá utanríkisráðuneytinu, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Elina Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands, Tobias Billström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Gabrelius Landsbergis, utanríkisráðherra Litáen, Lisbet Zilmer-Johns, yfirmaður utanríkismála hjá Danmörku, og Andžejs Vilumsons, yfirmaður alþjóðapólitískra mála í Lettlandi.

Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. apríl 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, Úkraína og mögulegar leiðir til að efla stuðning við varnarstríð landsins á alþjóðavísu, og málefni Belarús voru í brennidepli á nýafstöðnum utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna sem fram fór í Visby í Svíþjóð að þessu sinni. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin skipa NB8-ríkjahópinn.

Utanríkisráðherrarnir voru sammála um mikilvægi viðvarandi stuðnings við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu innrásarstríði Rússlands. Þörfin fyrir hergögn sé aðkallandi eigi Úkraína að geta varist innrásarliðinu og brýnt að leita leiða til að efla alþjóðlegan stuðning við baráttu Úkraínu og voru mögulegar leiðir til þess til umræðu á fundinum. 

Í ljósi ofangreinds, sem og stöðu heimsmálanna nú um stundir, lögðu ráðherrarnir áherslu á samstöðu bandalagsríkja í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins, sem fram fer í Washington í júlí á 75 ára afmælisári bandalagsins. Þar verður lögð áhersla á að bandalagið geti með trúverðugum hætti sinnt fælingarhlutverk sínu, tekist á við áskoranir og varist þeim ógnum sem að steðja. Þá verði tengsl Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu lykilmál á leiðtogafundinum í sumar þar sem þess er vænst að bandalagið taki að sér stóraukið samræmingarhlutverk í stuðningi bandalagsríkja.

Ráðherrarnir voru sömuleiðis sammála um að viðhalda þurfi stuðningi við lýðrsæðisöflin í Belarús undir forystu Sviatlönu Tsikhanouskayu.

Á fundinum tilkynnti Svíþjóð ennfremur um sérstakan samnorrænan og baltneskan ráðgjafahóp sem ætlað er að veita liðsinni við aðildarumsókn Úkraínu að Evrópusambandinu. Ísland á tvo fulltrúa í hópnum.

María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, sótti fundinn fyrir Íslands hönd.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Stóra vandamálið á húsnæðismarkaði er skipulagt ofbeldi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Saksóknari handtekinn og færður í fangageymslu

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Gefa einn og hálfan milljarð til Úkraínu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?