• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 28. nóvember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Snjór, snjókoma og nagladekk

,,Við hvetjum alla til að fara varlega og aka í samræmi við aðstæður"

by Ritstjórn
11. maí 2022
in Fréttir, Innlent
0
Deila á FacebookDeila á X
Mynd – Lögreglan á Vestfjörðum
,,Góðan daginn gott fólk. Þetta er staðan núna í morgunsárið á Ísafirði og öruggt er að svo er einnig víðar á Vestfjörðum. Við hvetjum alla til að fara varlega og aka í samræmi við aðstæður. Þó svo að í áramótakveðju okkar hafi verið komið inn á fallega morgna í maí þá er maí ekki hálfnaður og hægt að búast við ýmsu eins og við flest þekkjum. Þetta kemur allt.“ Segir í tilkynningu lögreglunnar á Ísafirði og þar er greinilega meiri þörf fyrir nagladekkin en í 101 Reykjavík í dag. 

Hugleiðingar veðurfræðings – Veðurspá Veðurstofu Íslands

Það verður áfram norðlæg átt á landinu, 5-13 m/s og snjókoma eða slydda fyrir norðan. Stöku skúrir sunnantil og rigning eða jafnvel slydda seint í kvöld. Hitastig verður um eða yfir frostmarki norðanlands en allt að 9 stigum yfir daginn syðst. Svipað veður verður á morgun, norðan og norðaustan 3-10 en 10-15 um landið norðvestanvert. Snjókoma eða slydda norðantil en léttir til sunnan heiða. Hiti 0 til 8 stig. Það dregur úr vindi og smám saman úr ofankomu á föstudag, snýst svo í austanátt með vætu á laugardag og byrjar hægt að hlýna.

Veðuryfirlit
600 km A af Langanesi er 984 mb lægð sem fer hægt NA. 200 km SA af Færeyjum er 989 mb lægð á austurleið en skammt S af Dyrhólaey er 995 mb hægfara smálægð. Yfir N-Grænlandi er 1017 mb hæð, en 300 km NA af Hvarfi er vaxandi 1002 mb lægð sem fer A.

Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðaustan 5-13 m/s og slydda eða snjókoma á norðurhelmingi landins. Skýjað með köflum sunnantil og stöku skúrir, en allvíða rigning eða slydda þar í kvöld. Norðaustan 5-10 á morgun en 8-15 norðvestantil. Víða rigning eða snjókoma en léttir til sunnan heiða seinnipartinn.
Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast sunnanlands.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðvestan 3-8, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en rigning eða slydda seint í kvöld. Norðan 8-13 á morgun og léttir til eftir hádegi. Hiti 3 til 6 stig yfir daginn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðan 5-10, en hvassari með austurströndinni. Snjókoma eða slydda á Norður- og Austurlandi og hiti um frostmark. Bjartviðri sunnan heiða með hita að 9 stigum yfir daginn.

Á laugardag:
Austan 5-13 og rigning með köflum en heldur hægari og úrkomuminna fyrir norðan. Úrkomuminna um kvöldið. Hlýnar smám saman.

Á sunnudag:
Suðlæg átt 3-8, skýjað og væta af og til en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 6 til 12 stig en svalara fyrir austan.

Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt, skýjað með köflum og víða þurrt. Milt í veðri, einkum vestantil á landinu.

Umræða
  • Móðir og stjúpfaðir handtekin vegna tálmunar

    Lög­regl­an lýs­ir eft­ir Eddu Björk Arn­ar­dótt­ur

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • ,,Verslanir sem hækka verð fyrir kaupæðisdagana“

    195 deilingar
    Share 78 Tweet 49
  • Lífeyrissjóðirnir töpuðu 800 milljörðum á fjárfestingum á einu og hálfu ári

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • 170 jarðskjálftar á kvikuganginum fyrir norðan Grindavík

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Móðir og stjúpfaðir handtekin vegna tálmunar

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?