• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 28. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

Símhleranir hafa verið gerðar opinberar hjá Kveik - RÚV - Þær uppgvötuðust við rannsókn fjárglæpa - 75 milljarðar millifærðir í skattaskjól

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. maí 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Við rannsókn á Al-Thani málinu kvörtuðu sakborningar undan hlerunum Sérstaks saksóknara en sumir þeirra fengu fleiri en einn fangelsisdóm fyrir glæpi og hæstu dóma sem hægt er að kveða upp fyrir fjársvik á Íslandi.

Magnús Guðmundsson hlaut þunga fangelsis- dóma fyrir fjárglæpi, samtals 4 og hálft ár

Hreiðar Már Sigurðsson,Magnús Guðmundsson, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson voru allir dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi og sátu inni á Kvíabryggju og í dómnum segir að þeir eigi sér engar málsbætur.

Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lagði í Héraðsdómi Reykjavíkur fram kröfu þess efnis að skýrslur verði teknar af sjö aðilum sem tengjast Al-Thani málinu svokallaða. Meðal þeirra eru rannsakendur sérstaks saksóknara.

Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars, sagði að verði skýrslutökurnar heimilaðar, muni það varpa frekara ljósi á ásakanir um ólöglegar símhleranir embættis sérstaks saksóknara. Hörður Felix kærði embættið til ríkissaksóknara fyrir ólögmætar hlustanir á milli sín og skjólstæðings síns, Hreiðars Más.

Magnús Guðmundsson kvartaði í dómsal yfir símahlerunum en hann var einnig sakborningur í Marple málinu eins og í fleiri sakamálum á hendur honum

Í ávarpi sínu sagði Magnús frá því sem hann taldi vera ólög­lega hler­un á síma sín­um, far­bann sem hann taldi í tráss við mann­rétt­indi sín og aðeins nýtta af sak­sókn­ara til að geta hlerað síma hans, sem ekki hefði verið hægt er­lend­is.

Sakborningar í Al-Thani málinu hlutu þunga dóma fyrir það sakamál – ,,Ákærðu eiga sér engar málsbætur“ segir í dómnum en hér eru aðeins dómar í þessu tiltekna máli:

  • Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Dómurinn er óskilorðsbundinn. 
  • Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg var dæmdur í þriggja ára fangelsi óskilorðsbundið.
  • Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var dæmdur í fimm ára fangelsi, óskilorðsbundið. 
  • Ólafur Ólafsson fjárfestir hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm óskilorðsbundinn. 
Í dómnum segir:

,,Hin refsiverðu viðskipti ákærðu vörðuðu verulegum fjárhæðum. Eiga brotin sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegt fjárhagslegt tjón hlaust af brotum ákærðu, sem fullframin voru á tímabilinu 18. til 23. september 2008. Eiga ákærðu sér engar málsbætur.“

75 milljarðar millifærðir í skattaskjól

All­ir áður hlotið fangelsisdóma – Fjármunir í skattaskjólum

Chesterfield mál­ið 75 milljarðar – Stærra en neyðarlán Seðlabanka Íslands

,,Um­fang þeirra viðskipta sem sér­stak­ur sak­sókn­ari ákær­ir fyr­ir í Chesterfield-mál­inu svo­kallaða nem­ur 510 millj­ón­um evra eða um 75 millj­örðum á gengi dags­ins í dag og 67-69 millj­örðum á gengi þess tíma sem viðskipt­in áttu sér stað. Þetta er svipuð upp­hæð og neyðarlán Seðlabank­ans til Kaupþings sem veitt var 6. októ­ber 2008, en það hljóðaði upp á 500 millj­ón­ir evra.

Þótt málið hafi orðið þekkt sem Chesterfield-málið nær það til lán­veit­inga sem fóru til sex fé­laga í heild. Voru þau öll skráð á Bresku Jóm­frúareyj­un­um. Þá var ítarlega fjallað um málið á Vísi sjá frétt hér og skjáskot að ofan:

Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

 

Umræða
Share36Tweet23
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Svar héraðssaksóknara til dómsmálaráðuneytisins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • 40% útflutningstollur á óunninn fisk – Verðlagsstofa verði lögð niður

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?