Við rannsókn á Al-Thani málinu kvörtuðu sakborningar undan hlerunum Sérstaks saksóknara en sumir þeirra fengu fleiri en einn fangelsisdóm fyrir glæpi og hæstu dóma sem hægt er að kveða upp fyrir fjársvik á Íslandi.

Hreiðar Már Sigurðsson,Magnús Guðmundsson, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson voru allir dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi og sátu inni á Kvíabryggju og í dómnum segir að þeir eigi sér engar málsbætur.
Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lagði í Héraðsdómi Reykjavíkur fram kröfu þess efnis að skýrslur verði teknar af sjö aðilum sem tengjast Al-Thani málinu svokallaða. Meðal þeirra eru rannsakendur sérstaks saksóknara.
Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars, sagði að verði skýrslutökurnar heimilaðar, muni það varpa frekara ljósi á ásakanir um ólöglegar símhleranir embættis sérstaks saksóknara. Hörður Felix kærði embættið til ríkissaksóknara fyrir ólögmætar hlustanir á milli sín og skjólstæðings síns, Hreiðars Más.
Magnús Guðmundsson kvartaði í dómsal yfir símahlerunum en hann var einnig sakborningur í Marple málinu eins og í fleiri sakamálum á hendur honum
Í ávarpi sínu sagði Magnús frá því sem hann taldi vera ólöglega hlerun á síma sínum, farbann sem hann taldi í tráss við mannréttindi sín og aðeins nýtta af saksóknara til að geta hlerað síma hans, sem ekki hefði verið hægt erlendis.
Sakborningar í Al-Thani málinu hlutu þunga dóma fyrir það sakamál – ,,Ákærðu eiga sér engar málsbætur“ segir í dómnum en hér eru aðeins dómar í þessu tiltekna máli:
-
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Dómurinn er óskilorðsbundinn.
-
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg var dæmdur í þriggja ára fangelsi óskilorðsbundið.
-
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var dæmdur í fimm ára fangelsi, óskilorðsbundið.
-
Ólafur Ólafsson fjárfestir hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm óskilorðsbundinn.
Í dómnum segir:
,,Hin refsiverðu viðskipti ákærðu vörðuðu verulegum fjárhæðum. Eiga brotin sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegt fjárhagslegt tjón hlaust af brotum ákærðu, sem fullframin voru á tímabilinu 18. til 23. september 2008. Eiga ákærðu sér engar málsbætur.“
75 milljarðar millifærðir í skattaskjól
Allir áður hlotið fangelsisdóma – Fjármunir í skattaskjólum
Chesterfield málið 75 milljarðar – Stærra en neyðarlán Seðlabanka Íslands
,,Umfang þeirra viðskipta sem sérstakur saksóknari ákærir fyrir í Chesterfield-málinu svokallaða nemur 510 milljónum evra eða um 75 milljörðum á gengi dagsins í dag og 67-69 milljörðum á gengi þess tíma sem viðskiptin áttu sér stað. Þetta er svipuð upphæð og neyðarlán Seðlabankans til Kaupþings sem veitt var 6. október 2008, en það hljóðaði upp á 500 milljónir evra.
Þótt málið hafi orðið þekkt sem Chesterfield-málið nær það til lánveitinga sem fóru til sex félaga í heild. Voru þau öll skráð á Bresku Jómfrúareyjunum. Þá var ítarlega fjallað um málið á Vísi sjá frétt hér og skjáskot að ofan:
Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?