• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rangar upplýsingar um nauðungarsölur og mikil leynd yfir tugþúsund seldra ríkiseigna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. júní 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar þingmanns, um nauðungarsölur, fjárnám og gjaldþrot hjá einstaklingum árið 2018, var birt á vef Alþingis 31. maí síðastliðinn.

Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Hagsmunasamtök heimilanna hafa farið yfir svarið og segir það rangt. Þá hefur Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins, ekki enn fengið svar frá Íbúðalánasjóði eða Ásmundi Einari Daðasyni ráðherra og æðsta manni íbúðarmála á Íslandi. Varðandi u.þ.b. tíu þúsund eignir sem að íbúðalánasjóður virðist hafa selt einhverjum á mjög lágu undirverði. En beðið hefur verið eftir upplýsingum þar um á annað ár en Persónuvernd var búin að gefa ráðherra leyfi fyrir því að upplýsingarnar yrðu birtar en af einhverri ástæðu er þeim enn haldið leyndum af hálfu ráðherrans. Ítrekað hefur verið eftir því leitað, m.a. á Alþingi, að Ásmundur Einar upplýsi um kaupendur þessa fordæmalausa fjölda eigna, tugþúsund íslenskra fjölskyldna sem að misstu eignir sínar í hruninu, án árangurs. Komið  hefur fram að meðaltalsverð hafi verið um 17 milljónir á fasteign, fermetraverð á Höfuðborgarsvæðinu er í dag u.þ.b. hálf milljón, til samanburðar.
Þá eru einnig ótaldar þúsundir fasteigna sem að bankarnir hirtu af fólki og seldu til einhverra útvaldra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Í svarinu sem að nú um ræðir og unnið er af Þjóðskrá, eru birtar tölur yfir árin 2008 – 2018 sem eru því miður rangar hvað varðar nauðungarsölur og koma alls ekki heim og saman við upplýsingar sem aflað var beint frá embættum sýslumanna samkvæmt svari við sambærilegri fyrirspurn 15. ágúst 2018. Að sögn Hagsmunasamtaka heimilanna og þar segir m.a.:
Ásmundur Einar Daðason

,,Því hefur nú verið slegið upp í fjölmiðlum að nauðungarsölur hjá einstaklingum hafi einungis verið 69 árið 2018 samkvæmt þessum nýju tölum, sem er algjörlega fráleitt. Einföld talning á vef sýslumanna leiðir í ljós að 446 framhaldsuppboð voru auglýst árið 2018. Það er því ljóst að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis við úrvinnslu Þjóðskrár.
Samanburður á þessum tveimur svörum dómsmálaráðherra sýnir að í tölum þessara ára eru yfir 6.500 nauðungarsölur vantaldar í gögnum Þjóðskrár. Svo dæmi sé tekið voru nauðungarsölur flestar árið 2010 eða 1.574 talsins samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættunum sjálfum, en samkvæmt tölum Þjóðskrár eru þær sagðar hafa verið einungis 13 það ár.
Aðrar tölur í umræddu svari samræmast þó fyrri upplýsingum. Samkvæmt þeim hefur lítið dregið úr fjárnámum hjá einstaklingum sem voru yfir tólf þúsund árið 2018 og þar af hátt í tíu þúsund árangurslaus. Á tímabilinu 2008-2018 voru því samtals gerð um 164.000 fjárnám og þar af um 127.000 árangurlaus. Jafnframt er ekkert lát á gjaldþrotum einstaklinga sem voru 312 árið 2018 og fjölgaði um 22 frá fyrra ári, en samtals hafa 3.284 einstaklingar orðið gjaldþrota á tímabilinu.
Þessar tölur ættu að fá alla til að staldra við. Það er ekkert eðlilegt við tölur af þessari stærðargráðu í 350.000 manna samfélagi. Hér hefur eitthvað farið stórkostlega úrskeiðis!
Hagsmunasamtök heimilanna harma þau mistök sem hljóta af hafa orðið við samantekt Þjóðskrár varðandi nauðungarsölur og hafa farið fram á leiðréttingu frá stofnuninni auk þess sem þau beina því til dómsmálaráðherra að sjá til þess að Alþingi fái réttar upplýsingar sem fyrst.
Samanburður á tölum frá sýslumannsembættum og Þjóðskrá um nauðungarsölur hjá einstaklingum 2008-2018:
Auk þess hafa a.m.k. 349 fasteignir verið seldar vegna greiðsluaðlögunar.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?