• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 21. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skordýraborgarar og smáþörungar – fæða okkar í framtíðinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sjálfbærni er hugtak sem mikið er í umræðunni þessa dagana og er það í fullu samræmi við sjálfbærnimarkmið (eða heimsmarkmið) Sameinuðu þjóðanna fyrir allar þjóðir heims fyrir árið 2030. Flestum er orðið ljóst að betur má ef duga skal þegar litið er til sjálfbærrar nýtingar auðlinda jarðar, svo tryggja megi möguleika framtíðarkynslóða til að eiga þess kost að nýta þessar auðlindir sér til næringar og lífs. Eitt af því sem þarf að vinna að er endurhugsun fæðukerfisins, þar sem matvælatækni og matvælavísindi eru lykill í því að finna leiðir til að nýta betur, á sjálfbæran hátt, vannýttar en ríkulegar auðlindir jarðarinnar.
Um þetta snýst Evrópuverkefni sem Matís stýrir og starfar að í samstarfi við framsækin fyrirtæki, stofnanir og háskóla í Evrópu. Verkefnið miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um og jákvæðra viðhorfa til nýrra sjálfbærra fæðuleiða og það hvernig tækni og vísindi eru nauðsynlegur þáttur þar. Verkefnið heitir Future Kitchen og er eitt þeirra verkefna sem Matís stýrir og starfar að, sem styrkt af EIT Food, undirstofnun Evrópusambandsins.
Í verkefninu er upplýsingum um fæðuleiðir, sem nýttar eru á sjálfbæran hátt, miðlað í myndbandaformi. Þar er skemmtimennt (e. infotainment) notuð til að koma upplýsingunum til ungs fólks, helsta markhóps verkefnisins, á áhugaverðan og einnig skemmtilegan hátt, m.a. með notkun sýndarveruleikamyndbanda.

Á þessu ári hefur þegar verið gefið út Future Kitchen sýndarveruleikamyndband sem sýnir sjálfbæra ræktun smáþörunga í sérhönnuðu ræktunarkerfi innanhúss í fyrirtækinu Algaennovation á Íslandi, en fyrirtækið nýtir jarðvarma til ræktunarinnar. Annað sýndarveruleikamyndband, sem væntanlegt er fljótlega, sýnir ræktun skordýra til fæðu, en svissneska fyrirtækið Essento gerir skordýraborgara sem grillaðir eru úti við í góðra vina hópi í myndbandinu. Bæði skordýr og smáþörungar eru næringarrík fæða og ríkuleg auðlind á jörðu. Talið er að milli 30.000 – 1 milljón tegundir smáþörunga fyrirfinnist á jörðinni, en einungis innan við 10 tegundir eru nýttar til fæðu eða í fæðubótarefni í dag. Þá má geta þess að auk þess að vera „vítamínbomba“ eru smáþörungar hin raunverulega uppspretta hinna mikilvægu Omega3 fitusýra, en fiskur fær þessar nauðsynlegu fitusýrur úr smáþörungunum.
Sýndarveruleikamyndböndin má horfa á í þar til gerðum sýndarveruleikagleraugum, en einnig á tvívíðum skjá með því að hreyfa bendilinn um skjáinn (eða hreyfa skjásíma/spjaldtölvu til og frá). Myndböndin eru aðgengileg á youtube síðu Matís og á FoodUnfolded.com.

https://www.foodunfolded.com/videos
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Um 800 manns að störfum í Grindavík í byrjun október

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Undirskriftalisti um kröfu á uppsögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur

    143 deilingar
    Share 57 Tweet 36
  • Rætt um mikilvægi sjálfsfróunar í fermingarfræðslu – ,,Alltaf í sleik við Jesús“

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

    510 deilingar
    Share 204 Tweet 128
  • Ráðist á konu sem var í bifreið sinni

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?