• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 21. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Öryggis- og varnarmál Íslands

Öryggis- og varnarmál og vináttutengsl Íslands og Lettlands í forgrunni Íslandsheimsóknar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. júní 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Breytt staða öryggismála var meginefni fundar dr. Artis Pabriks, varaforsætisráðherra og varnarmálaráðherra Lettlands, með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í gær. Opinberri heimsókn varnarmálaráðherrans hingað til lands lauk í gær. 

„Það er mikil hlýja í samskiptum Íslands og Lettlands. Við eigum ríka samleið í öryggis- og varnarmálum, sem aðilar að Atlantshafsbandalaginu, JEF og svo Norðurhópnum sem fundaði hér í Reykjavík í vikunni. Við erum sammála um hversu mikilvægt það er fyrir öryggi allrar Evrópu að Rússland tapi stríðinu,“ segir utanríkisráðherra.

Varnarmálaráðherrann fundaði einnig með Önnu Jóhannsdóttur, staðgengli ráðuneytisstjóra, og fleira embættisfólki úr utanríkisráðuneytinu, þar sem öryggispólitísk málefni og öryggis- og varnarsamstarf var í forgrunni. Ráðherrann átti einnig fund með Bjarna Jónssyni, formanni utanríkismálanefndar, og fleiri fulltrúum nefndarinnar, og fundaði með fulltrúum forsætisráðuneytis.

Í gær flutti ráðherrann erindi á málþingi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, breska sendiráðsins og Varðbergs, þar sem sjónum var beint að nýjum öryggisáskorunum út frá sjónarhóli smáríkja í Norður-Evrópu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hélt opnunarávarp, eistneski netöryggissérfræðingurinn Marle Maigre flutti erindi, og pallborðsumræður fylgdu í kjölfarið.

Í ár eru fimm ár frá liðin frá því að samstöðuaðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi voru settar á fót. Ísland hefur stutt við samstöðuaðgerðina í Lettlandi með útsendum tímabundnum sérfræðingi á sviði upplýsingamála frá árinu 2020.

Á meðan heimsókninni stóð kynnti ráðherrann sér einnig starfsemi íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Teledyne Gavia, sem framleiðir og selur fjarstýrða kafbáta.

Artis Pabriks og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir á fundi sínum í gær.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

    Ákærður fyrir að nauðga sex ára stúlku og eiginkonu sinni

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Hringveginum verður lokað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Vændiskonur á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar

    262 deilingar
    Share 105 Tweet 66
  • Umferðarslys í Garðabæ – einn slasaður og fluttur á slysadeild

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?