• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 8. desember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Banaslysið á Meðallandsvegi – grunaður um ölvunarakstur

Helstu verkefni á Suðurlandi dagana 4. til 10. júlí 22

by Ritstjórn
11. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
0
Deila á FacebookDeila á X
Lögreglan Suðurlandi
Farþegi í jeppabifreið lést þegar bifreiðinni var ekið út af Meðallandsvegi aðfaranótt föstudagsins 8. júlí s.l. Tveir farþegar voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu til Reykjavíkur en eru, eftir því sem best er vitað,  á batavegi.  Ökumaður slapp ómeiddur úr slysinu.   Hann er grunaður um ölvun við akstur bifreiðarinnar.    Málið er í hefðbundnu rannsóknarferli en að þeirri rannsókn kemur auk lögreglu á Suðurlandi, m.a. með aðstoð sérfræðings í rannsóknum ökutækja og tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins.   Upplýsingar um einstaka rannsóknarþætti verða ekki gefnar upp á meðan á rannsókninni stendur.

18 önnur umferðarslys eru skráð í vikunni á Suðurlandi.  Eitt þeirra á Fjallabaksleið þann 8. júlí en þar rákust saman tvær bifreiðar.  Tveir fluttir af vettvangi í sjúkrabifreið en aðrir ómeiddir.  Hálendisgæsla Landsbjargar aðstoðaði á vettvangi við fyrstu aðgerðir enda staðsett í Landmannalaugum, skammt frá vettvangi, með bækistöðvar sínar.  Daginn áður varð tjón á þremur húsbílum í þremur aðskildum málum í Öræfum þegar þeir fuku út af vegi og skemmdust verulega.   Meiðsli á ökumönnum og farþegum í öllum tilfellum minniháttar

40 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku.  7 þeirra í Sveitarfélaginu Hornafirði,  4 í Rangárþingi, 11 í V-Skaftafellssýslu og 17 í Árnessýslu. Tveir ökumenn voru stöðvaðir í Rangárþingi grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja.   8 aðrir voru stöðvaðir vegna gruns um að þeir væru að aka ölvaðir, tveir þeirra í Rangárþingi en aðrir tveir í Árnessýslu.

7. júlí var einnig annasamur hjá okkar fólki í Landsbjörgu því þau aðstoðuðu veðurteppt fólk á Fimmvörðuhálsi, villta hestamenn á Fjallabaksleið og örmagna göngufólk á Laugaveginum, skammt frá Landmannalaugum.

Landsmót hestamanna fór fram á Rangárbökkum í liðinni viku,  á Helluflugvelli var flughátíð og á Selfossi var „Kótilettan“ haldin og eðli málsins samkvæmt mjög margir á ferð í kring um þessi hátíðahöld auk þess sem sumarfrí eru í gangi með tilheyrandi umferðarþunga á vegum umdæmisins. Efni eru til að hrósa mótshöldurum fyrir skipulag og gæslu og mótsgestum allra þessara hátíða almennt fyrir framgöngu.

Verulega var bætt í löggæslu vegna þessara viðburða og gekk hún almennt vel.   Meðal aðstoðarliðs var fíkniefnahundur Lögreglunnar í Vestmanneyjum og leiddi þátttaka hans í gæslunni til þess að 17 fíkniefnamál komu upp.   Þau varða öll vörslu og neyslu efna, ýmist kannabisefni, amfetamín eða kókaín.   Ein stúlka leitaði aðstoðar lögreglu vegna vanlíðunar, lýsti neyslu fíkniefna og áfengis og var ekið að sjúkrahúsi.  Þegar þangað kom hætti hún að svara lögreglumönnum og hófust þá þegar endurlífgunartilraunir á plani sjúkrahússins.  Þær báru árangur og henni komið í hendur sjúkraliðs sem einnig var komið á vettvang.

Þrjár kærur vegna kynferðisbrota bárust lögreglu í liðinni viku og tengist eitt þeirra rannsókn á heimilisofbeldismáli sem einnig var tilkynnt í liðinni viku.  Þau mál til rannsóknar hjá rannsóknardeild.

Umræða
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    641 deilingar
    Share 256 Tweet 160
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    270 deilingar
    Share 108 Tweet 68
  • Mál Alberts Guðmundssonar komið til héraðssaksóknara

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • 23 ára hælisleitandi dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Allt að 15 stiga frost næstu daga

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?