Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Volkswagen Golf með skráningarnúmerið RKE42, en bílnum var stolið í Brekkutanga í Mosfellsbæ í síðustu viku.
Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigurdur.petursson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.