Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Uppfært : Lögreglu hafa borist staðfestar upplýsingar um hver maðurinn sé, sem leitað var að fyrr í dag, og því er ekki þörf á eftirlýsingu lengur.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hildur.run@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Umræða