• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Einkareknir skólar borgarinnar áforma félagsleg undirboð – ,,Þeir ætla m.a. að afnema réttindi í fæðingarorlofi"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kjaraviðræður Eflingar við Samtök sjálfstætt starfandi skóla (SSSK) hafa leitt í ljóst að einkareknir skólar á höfuðborgarsvæðinu, sem starfa fyrir almannafé, hyggja á víðtæk félagsleg undirboð gagnvart starfsfólki sínu. Á samningafundi í fyrradag, 7. október, kröfðust SSSK kjaraskerðinga í mörgum liðum, þar á meðal að afnema núverandi uppsagnarvernd, skerða réttindi í fæðingarorlofi og stytta veikindarétt, í sumum tilfellum 25-falt.
Kjör umræddra starfsmanna hafa í næstum 20 ár tekið mið af starfskjörum starfsfólks Reykjavíkurborgar í sömu störfum. Yrði fallist á kröfur SSSK yrðu kjörin mun verri en borgarstarfsmanna. Yfirgnæfandi meirihluti starfsfólksins sem um ræðir eru konur á lægstu launatöxtum samkvæmt frásögn Eflingar.
Formaður SSSK fullyrti í viðtali við Mbl.is þann 7.10.2020 að engar kjaraskerðingar væru í tillögunum. Þar er um óþolandi rangfærslur að ræða sem Efling sér sig knúna til að leiðrétta. Í minnisblaði er farið yfir viðbrögð samninganefndar Eflingar á samningafundi í gær 8.10.2020.
Af 22 skólum sem í hlut eiga starfa 20 samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg þar sem ríkar kröfur eru gerðar til starfseminnar. Greidd eru framlög til skólanna úr sjóðum Reykjavíkurborgar sem miðast við rekstrarkostnað leikskóla borgarinnar, en einkareknir skólar hafa heimild til að afla sér viðbótartekna með gjaldtöku.
Viðræður Eflingar og SSSK hafa staðið í meira en hálft ár, eða allt frá því samdist við Reykjavíkurborg þann 10. mars 2020. Efling vísaði deilunni til ríkissáttasemjara í maí. Nálægt 300 félagsmenn Eflingar starfa hjá aðildarfyrirtækjum SSSK.
„Borgin hefur undirritað sögulegan kjarasamning við Eflingu þar sem mikilvægi hefðbundinna kvennastarfa var viðurkennt. Nú ætla einkareknir leikskólar, sem eru á framfæri borgarinnar, að ráðast á kjör sömu kvenna með félagslegum undirboðum. Þeir ætla meðal annars að afnema réttindi þeirra í fæðingarorlofi. Ég hef orðið vitni að ýmsu í kjaraviðræðum með félagsmönnum Eflingar en þetta er með því ótrúlegra. Ég velti því fyrir mér hvort Reykjavíkurborg ætli að taka þátt í þessari aðför,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Efling mun boða til upplýsinga- og samráðsfundar með félagsmönnum sem starfa hjá SSSK strax eftir helgi þar sem næstu skref verða ákveðin.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?