• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 7. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vilhjálmur hættu við framboð og yfirgáfu ASÍ

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. október 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

45. þing ASÍ var sett í dag, klukkan 10:00. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ setti þingið í kjölfar tónlistarflutnings hljómsveitarinnar GÓSS. Kristján Þóður vék að þeim áskorunum sem verkalýðshreyfingin stendur frammi fyrir, bæði heima fyrir og í alþjóðlegu samhengi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra ávarpaði því næst fulltrúa á þinginu og sagði frá þeim málefnum sem hann vildi leggja sérstaka áherslu á í embætti, m.a. málefni öryrkja og jafnréttismál, en hann talaði einnig fyrir góðri samvinnu við verkalýðshreyfinguna.

Því næst talaði Ólafur Margeirsson, hagfræðingur frá Sviss og fjallaði um íbúðahúsnæði sem fjárfestingakost fyrir lífeyrissjóði. Þingið stendur fram á miðvikudag en kosningar um forseta ASÍ fara fram eftir hádegi á miðvikudeginum.

Þau sögulegu tíðindi voru að berast að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, dró í dag framboð sitt til forseta ASÍ til baka. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hafa líka hætt við að gefa kost á sér í embætti varaforseta. Þetta er sérstök uppákoma að forystufólk stærstu aðildarfélaga og landssambanda innan Alþýðusambands Íslands hætti við framboð og gangi út af þinginu ásamt stuðningsfólki sínu.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, neitaði að tjá sig við fjölmiðla. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sögðu bæði að skoða þyrfti hvort hreyfingar þeirra yrðu áfram innan raða ASÍ. Bæði Sólveig Anna og Ragnar Þór hafa áður talað um möguleika þess að félög þeirra segi sig úr ASÍ. Þetta eru tvo stærstu félögin.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Seðlaban­kinn hætt­ir gjal­dey­r­is­kaup­um

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?