• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

420 þúsund króna hraðasekt og 18 mánaða svipting

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Lögreglan á Suðurlandi 

Ökumanni sem ók bifreið sinni á 163 km/klst hraða um Suðurlandsveg við Dalsel þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst þann 7. nóvember s.l. lauk máli sínu með sektargreiðslu upp á 230 þúsund krónur ásamt viðeigandi sviptingu ökuréttar. Tveimur dögum áður hafði annar ferðamaður orðið uppvís af því að aka bifreið sinni með 142 km/klst hraða um Suðurlandsveg við Stórólfshvol en einnig þar er leyfður hámarkshraði 90 km/klst. Sektargreiðsla hans hljóðaði upp á 420 þúsund krónur auk 18 mánaða sviptingar en þar inn í þá ákvörðun spilar sú staðreynd að áfengismagn í blóði hans mældist 1,57 prómill.
Annar ferðamaður mældist aka á sama hraða rétt vestan Flateyjar á Mýrum í A-Skaft en sá reyndist hinsvegar ófullur. Við verðum jú að líta á björtu hliðarnar. 36 aðrir eru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu í liðinni viku. Þetta var meðal verkefna lögreglunar á Suðurlandi í síðustu viku.
Tvö slys, önnur en umferðarslys, voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. Í öðru tilfellinu féll göngumaður á hálku í Skaftafelli og er mögulega ökklabrotinn. Í hinu tilfellinu datt maður í búningsklefa gufubaðs í Árnessýslu og hruflaðist víðsvegar um líkamann vegna þessa. Efni til að minna á hálkuvarnir utandyra þegar komið er fram í vetrarbyrjun og svo að gæta að sér að sitja ekki of lengi í gufunni í einu.
17 umferðaróhöpp eru skráð í umdæminu í liðinni viku. Fest án meiðsla eða að meiðsl hafa reynst minniháttar. Í flestum tilfellum spilar vetrarfærð inn í sem hluti af orsök óhappanna en ljóst er að ökuhraði skiptir miklu máli þegar óhöpp verða. Þann 4. nóvember varð árekstur með tveimur jepplingum sem komu úr gagnstæðum áttum á Suðurlandsvegi við Sléttaland. Ökumenn og farþegar beggja bifreiða voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu LHG. Öll eru þau eitthvað meidd en þó ekki lífshættulega. Krapi var á vegi og virðist önnur bifreiðin hafa flotið upp og farið yfir á öfugan vegarhelming. Degi síðar, þann 5. nóvember varð árekstur með jeppling og vöruflutningabifreið á þjóðvegi 1, skammt frá Steinavötnum. Jepplingurinn virðist hafa flotið upp í krapi og lent framan á vörubifreiðinni með þeim afleiðingum að framhjól rifnaði undan vörubifreiðinni auk þess sem jepplingurinn gjöreyðilagðist. Bæði ökumaður og farþegi jepplingsins voru fluttir með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík ásamt ökumanni vörubifreiðarinnar en meiðsl þeirra reyndust hinsvegar mun minni en útlit var fyrir í upphafi.
Einn ökumaður er grunaður um að hafa ekið bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna en lögreglumenn höfðu afskipti af honum eftir að hann hafði lent í árekstri á gatnamótum á Selfossi þann 4. nóvember. 5 aðrir voru stöðvaðir við eftirlit í umdæminu grunaðir um ölvun við akstur.
2 ökumenn flutningabifreiða voru sektaðir fyrir að flytja of þungan farm.
Lögreglumenn á Suðurlandi héldu árshátíð sína á Hótel Örk um liðna helgi. Byrjað var á starfsdegi þar sem sálfræðingur fræddi lögreglumenn og maka þeirra um streitu og afleiðingar hennar en öllum má vera ljóst að sama hver vinnan er, áhrifa hennar getur gætt heimafyrir. Síðan var hátíðarkvöldverður um kvöldið með viðeigandi heimatilbúnum skemmtiatriðum og dansleik á eftir þar sem hljómsveit lögreglunnar hóf leikinn en síðan tók við hljómsveit sjúkraflutningamanna á Suðurlandi. Eff-1 annarsvegar og Asistóla hinsvegar svona svo frumlegheitunum sé haldið til haga. Met mæting var á árshátíðina af öllum stöðvum umdæmisins og leystu lögreglumenn úr nærliggjandi umdæmum vaktina á meðan þetta gekk yfir. Við kunnum þeim og öllum þeim sem gerðu þetta kleift okkar bestu þakkir fyrir frábæra skemmtun, veitingar og þjónustu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?