• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Byggt í Búðardal

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Kristján Sturluson, sveitarstjóri Dalabyggðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu á leiguhúsnæði í Búðardal. Viljayfirlýsingin snýr að því að fjölga leiguíbúðum í sveitarfélaginu en mikill skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði í Dalabyggð um lengri tíma.

MYND: Steinunn Matthíasdóttir
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Kristján Sturluson, sveitarstjóri Dalabyggðar, við undirritunina

Þá var tekin fyrsta skóflustungan að fimm leiguíbúðum sem byggja á í bænum en nánast ekkert hefur verið byggt af nýju íbúðarhúsnæði í Búðardal í hartnær áratug. Þrjár þeirra tengjast landsbyggðaverkefni Íbúðalánasjóðs og áttu þátt í því að ráðist var í frekari framkvæmdir.
Skrifað var undir viljayfirlýsinguna á opnum kynningarfundi um húsnæðismál á landsbyggðinni í Dalakoti í Búðardal. Við sama tækifæri kynnti Ásmundur Einar þær aðgerðir sem gripið hefur verið til að undanförnu til þess að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði, ekki hvað síst á landsbyggðinni. Fór hann sérstaklega yfir aðgerðir í tengslum við landsbyggðarverkefni Íbúðalánasjóðs en Dalabyggð er eitt þeirra sveitarfélaga sem valið var til þátttöku í verkefninu.
„Fimm nýjar íbúðir þykir í stóra samhenginu kannski ekki ýkja mikið en víða á landsbyggðinni geta þær bylt húsnæðismarkaðnum á viðkomandi svæði. Ekki eingöngu vegna þess að sveitarfélögin eru minni heldur einnig vegna þess að víða hefur lítið sem ekkert verið byggt af nýju íbúðarhúsnæði árum saman,“ sagði Ásmundur Einar við undirritunina.
Íbúðalánasjóður mun koma að útfærslu verkefnisins og hefur sjóðurinn ákveðið að leggja sveitarfélaginu til eins milljón króna styrk til þróunar þess. Sjóðurinn mun jafnframt leggja til fimm milljóna króna viðbótarframlag til byggingar íbúðanna, sem heimilt er að veita á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki vegna misvægis á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs íbúðarhúsnæðis. Styrkurinn er veittur sem hluti af sérstöku tilraunaverkefni sjóðsins. Samhliða því hefur félags- og barnamálaráðherra lagt fram frumvarp um breytingu á almennum íbúðum sem tryggir að hægt verður að veita slíkt viðbótarframlag á fleiri landsvæðum þar sem misvægi byggingarkostnaðar og markaðsverðs íbúða er til staðar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Vændiskonur á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar

    259 deilingar
    Share 104 Tweet 65
  • Umferðarslys í Garðabæ – einn slasaður og fluttur á slysadeild

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Veitur hækka hitaveitugjald um 50%

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Grunnur steyptur að undir­stöð­um Ölfusár­brúar

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?