• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vindur mældist 36 m/s

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Hugleiðingar veðurfræðings

Í gær og í nótt var suðaustanstormur á landinu og fór vindurinn mest í 36 m/s á Stórhöfða. Veðrið var óvenjulegt að því leyti að spár breyttust ört og litlir hnútar mynduðust á skilunum sem mögnuðu vindinn upp staðbundið. Nú í morgunsárið eru allar viðvaranir runnar út, en þó eru ekki allir hnútar farnir þannig að vindurinn gæti hlaupið upp aftur á stöku stað.
Einna helst er að nefna V-land nálægt Langjökli um hádegi og með S-ströndinni í kvöld. Annars stefnir í strekkings austanátt í dag, jafnvel allhvassan vind, og rigningu SA-lands, en skúri eða slydduél annars staðar, einna síst á N-landi.
Á morgun dregur frekar úr vindi og kólnar víða. Útlit er fyrir él með A-ströndinni, en skúri eða slydduél annars staðar. Á miðvikudag snýst síðan í norðlægari áttir og frystir allvíða á landinu.
Veðurhorfur á landinu
Minnkandi austlæg átt, 10-18 m/s upp úr hádegi, en hægari suðvestanlands. Hvessir með suðurströndinni seinnipartinn, 15-20 m/s um tíma, en lægir aftur í kvöld. Rigning suðaustantil, þurrt að kalla fyrir norðan, en skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig að deginum.
Suðaustan 5-13 m/s á morgun og kólnar. Þurrt norðantil, annars víða skúrir eða él. Frost 0 til 6 stig, en hiti upp í 5 stig sunnan- og vestanlands.
Spá gerð: 11.11.2019 10:34. Gildir til: 13.11.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt 3-10 m/s og dálítil él norðaustan- og austanlands, en léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Frost víða 0 til 6 stig.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt, 3-10 m/s og léttskýjað, en lítilsháttar él með norður- og austurströndinni. Vaxandi sunnanátt vestast um kvöldið. Kalt í veðri.
Á föstudag:
Hvöss sunnanátt með talsverðri rigningu og hlýnar. Vestlægari um kvöldið með skúrum eða éljum og kólnar aftur.
Á laugardag:
Vestlæg átt og él eða skúrir, en léttskýjað austantil á landinu. Hiti kringum frostmark um landið sunnan- og vestanvert en annars frost 0 til 6 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðvestlæga átt og él með norðurströndinni en annars þurrt veður. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 11.11.2019 08:02. Gildir til: 18.11.2019 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?