• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 15. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Milljarða jólagjöf til hinna ríkustu – Þeir sem falla af atvinnuleysisbótum þurfa að treysta á fjárhagsaðstoð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. desember 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0
.

Nýtist 10% tekjuhæstu framteljendunum best

Það er handagangur í öskjunni á Alþingi rétt fyrir jól og möguleikar almennings, til að greina ákvarðanir og veita aðhald, takamarkaðir. Nú stendur fyrir dyrum að létta skattbyrði á þeim allra ríkustu í samfélaginu með því að hækka frítekjumark fjármagnstekna úr 150 þúsund í 300 þúsund og láta það ná til arðgreiðslna og söluhagnaðs. Aðgerð sem kostar ríkissjóð um milljarð á ári á sama tíma og Landspítalinn þarf að hagræða um 4 milljarða.
Drífa Snæda skrifar:

Þetta má setja í samhengi við baráttuna um að ná fram skattalækkunum á þá allra tekjulægstu í samfélaginu samhliða Lífskjarasamningum. Sú skattalækkun var knúin fram í krafti kjaraviðræðna og var hluti af kjarabótum almennings. Samningaviðræður áttu sér stað og Alþýðusambandið lagði fram gögn sem sýndu að skattbyrði hefði aukist á þá sem lægst hafa launin. Það þurfti mikið afl til að breyta skattkerfinu og það var gert til að auka jöfnuð.

Nú þegar ríkisstjórnin vill létta sköttum á þeim allra ríkustu og þar með veikja tekjustofna ríkisins er ekkert samráð og afar veikur rökstuðningur en jólagjöfin þeim mun veglegri. Í því sambandi má nefna að núverandi frítekjumark fjármagnstekna nýtist 90% framteljenda.

Aðgerðin nýtist því 10% tekjuhæstu framteljendunum best. Horfið er af braut jöfnuðar og ekkert sem styður þennan gjörning á tímum þegar ríkissjóður hefur sannanlega ekki efni á að minnka tekjur sínar nema fyrir því séu afar góð rök. Nær væri að efla tekjuöflun ríkisins en með því að veikja tekjustofna sína er ríkið líka að rýra tekjur sveitarfélaga.

Fleiri munu falla út af atvinnuleysisbótum og þurfa að treysta á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna auk þess sem þau hafa ríkar skyldur að halda uppi velferð á krepputímum. Á meðan þarf ríkasta fólk landsins, þau sem fá tekjur sínar af peningum og fjármálagjörningum, ekki að greiða útsvar til sveitarfélaga þótt þau nýti þjónustu þeirra á við alla aðra, hvort sem litið er til snjómoksturs eða leik- og grunnskóla.

Þessar áherslur stjórnvalda vekja ekki vonir um að við komumst út úr kreppunni með jafnara og sanngjarnara samfélag. Þvert á móti á að nýta ástandið til að lauma bitlingum til ríkasta fólksins, það er jólagjöfin í ár.  Góða helgi, Drífa

https://gamli.frettatiminn.is/05/12/2020/rikisstjornin-hundsar-atvinnulausa-sem-betla-mat/

Umræða
Share507Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Helgi Pétursson látinn

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    229 deilingar
    Share 92 Tweet 57
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?