• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 29. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Varúð! Vaxandi stuldur á kortanúmerum

ritstjorn by ritstjorn
11. desember 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Núna ber mikið á fölskum skilaboðum sem m.a. eru send í nafni póstflutningafyrirtækja og efnisveita. Í þessum skilaboðum er fólki gjarnan beint inn á falskar netsíður þar sem það er beðið um að greiða reikninga með því að gefa upp kortaupplýsingar og öryggisnúmer. Í kjölfarið berast SMS skilaboð um að staðfesta aðgerðina. Ef fólk staðfestir aðgerðina t.d. með því að slá SMS kóðann á fölsku vefsíðuna og þar með afhenda tölvuþrjótunum kóðann, er það í raun að staðfesta heimild fyrir allt öðrum viðskiptum sem svikararnir standa fyrir. Fjárhæðirnar í þeim geta verið háar og miklu hærri en koma fram í falska reikningnum.

Töluvert er um þessar svikatilraunir og hættan á tjóni er mikil. Við hvetjum ykkur því til að lesa vandlega alla tölvupósta og öll SMS sem berast í tengslum við netverslun og aldrei slá inn kortaupplýsingar nema að vel athuguðu máli.

Á meðal þeirra leiða sem reyndar eru við svikin er að fá fólk til að skrá kortaupplýsingarnar í það sem virðist vera Apple Pay. Ekki er ólíklegt að einnig verði reynt að fá fólk til að skrá þær í aðrar greiðsluleiðir, s.s. Garmin Pay og Fitbit Pay.

Fáir þú óvænt tilkynningu um tilraun til að skrá kortið þitt í Apple Pay, eða um tilraun til skráningar kortsins með öðrum hætti án þinnar vitundar, skaltu þegar í stað hafa samband við viðskiptabankann þinn.Á meðal þeirra leiða sem reyndar eru við svikin er að fá fólk til að skrá kortaupplýsingarnar í það sem virðist vera Apple Pay. Ekki er ólíklegt að einnig verði reynt að fá fólk til að skrá þær í aðrar greiðsluleiðir, s.s. Garmin Pay og Fitbit Pay.

Fáir þú óvænt tilkynningu um tilraun til að skrá kortið þitt í Apple Pay, eða um tilraun til skráningar kortsins með öðrum hætti án þinnar vitundar, skaltu þegar í stað hafa samband við viðskiptabankann þinn.

Hvert leita ég eftir aðstoð?

Hafðu samband við þinn viðskiptabanka eins fljótt og auðið er ef þú telur þig hafa lent í svikum.

Landsbankinn

  • s. 410-4000, landsbankinn@landsbankinn.is og netspjall á https://www.landsbankinn.is

Íslandsbanki

  • s. 440-4000, islandsbanki@islandsbanki.is og netspjall á https://www.islandsbanki.is

Arion banki

  • s. 444-7000, netsvik@arionbanki.is og netspjall á https://www.arionbanki.is

Sé um að ræða tilkynningu eftir lokunartíma bankanna skal hringja í neyðarnúmer greiðslumiðlunarfyrirtækja:

Valitor – s. 525-2000  Borgun – s. 533-1400

Við bendum jafnframt á að tilkynna svik til lögreglunnar á netfangið cybercrime@lrh.is

Hvernig get ég varist svikum?

Kynnið ykkur fræðsluefni bankanna til að vera betur í stakk búin til að verjast svikum.

Fræðsluefni:

Landsbankinn – sjá hér

Íslandsbanki – sjá hér

Arion banki – sjá hér

Discussion about this post

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Svona getur þú lækkað bankakostnaðinn þinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 130 ökutæki fengu akstursbann – Eftirlit og ný lög

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?