Við hefðbundna skimun sjúklings vegna Covid-19 á hjartadeild 14EG Landspítala í kvöld, þriðjudaginn 12. janúar, kom í ljós að sjúklingur reyndist smitaður. Ekki liggur fyrir hvernig umræddur sjúklingur smitaðist, en þó liggur fyrir að viðkomandi smitaðist inniliggjandi á hjartadeild. Viðkomandi er nú á heimili sínu.
Lokað hefur verið fyrir innlagnir á hjartadeild, en bráðum innlögnum hjartasjúklinga verður sinnt á öðrum legudeildum. Öllum valkvæðum aðgerðum og göngudeildarheimsóknum á hjartadeild á morgun, miðvikudaginn 13. janúar, hefur verið frestað. Frekari upplýsinga um starfsemi hjartadeildar næstu daga á eftir er að vænta.
Farsóttarnefnd Landspítala kom þegar í stað saman ásamt stjórnendum hjartadeildar og ákveðið var að grípa til eftirfarandi ráðstafana: Skima alla sjúklinga (32 talsins), skima allt starfsfólk deildarinnar (á annað hundrað manns) og hafa samband við aðstandendur. Þessar aðgerðir standa núna yfir og verður fram haldið á morgun. Tryggt verður að þeir fari skimun sem þörf krefur.
Sóttvarnalæknir hefur verið upplýstur um málið og nú er unnið að smitrakningu innanhúss og meðal þeirra sem deildinni tengjast eftir atvikum.
Alltaf er hætta á því í heimsfaraldri eins og vegna Covid-19, að smit komi upp á einstökum deildum með þessum hætti, jafnvel þótt ítrustu sóttvarna og fyllstu varúðar og öryggis sjúklinga sé gætt. Margir tugir og jafnvel nokkur hundruð manns starfa á flestum stærri deildum Landspítala og þetta fólk er allt virkt upp að vissu marki í samfélaginu. Deildirnar þarf einnig að þjónusta af stórum hópi fólks í stoðdeildum spítalans. Sömuleiðis eru heimsóknir aðstandenda leyfðar upp að vissu marki.
Discussion about this post