• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 30. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Fjöldadauði svartfugla – Fuglaflensa?

Sýni verða rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum m.t.t. fuglaflensu

ritstjorn by ritstjorn
12. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Matvælastofnun fékk tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun Íslands þann 11. janúar, um að fjöldi svartfugla hafi fundist dauður á Suðausturlandi. Starfsfólk Náttúrustofu Austurlands hefur gengið fjörur og safnað hræjum til rannsóknar. Mikið er um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fuglum og alifuglum. Þótt ólíklegt sé að fuglaflensusmit valdi slíkum fjöldadauða í villtum fuglum mun Matvælastofnun sjá til þess að sýni verði rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum m.t.t. fuglaflensu.

Samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar hefur áður orðið vart slíkra tilfella. Síðasti stóri atburðurinn var veturinn 2001-2002. Um hann má lesa í grein Ólafs K. Nielsen og Ólafs Einarssonar í Tímariti Hins íslenska náttúrufræðifélags. Niðurstaða rannsóknar þeirra var að hungur hafi drepið fuglana.

Um þessar mundir er mjög mikið um fuglaflensu í Evrópu bæði í villtum fuglum og alifuglum. Flestar greiningar eru af skæðu afbrigði fuglaflensuveiru H5N1, sem er mjög sjúkdómsvaldandi fyrir fugla. Það er mikilvægt að vera á verði fyrir óeðlilegum dauða í villtum fuglum, því ef smit finnst í þeim þarf að gera sérstakar ráðstafanir til að fyrirbyggja eins og kostur er að smit berist í alifugla.

Þrátt fyrir að farfuglatímabilið sé ekki hafið er ekki hægt að útiloka að skæðar fuglaflensuveirur séu til staðar í villtum íslenskum fuglum yfir veturinn. Faraldsfræðin hvað þetta varðar er þó óljós. Í öllu falli skal hafa samband við Matvælastofnun þegar villtur fugl finnst dauður, nema ef augljóst er að hann hafi drepist af slysförum. Best er að tilkynna það með því að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar. Þegar Matvælastofnun berst tilkynning metur stofnunin hvort taka skuli sýni úr fuglinum. Ef taka þarf upp dauðan fugl skal það gert með einnota hönskum og hann settur í plastpoka eða með því að stinga hendi í plastpoka og taka fuglinn upp með pokanum og draga pokann svo yfir fuglinn og loka fyrir.

Þau afbrigði veirunnar sem nú er mest um í nágrannalöndum okkar, hafa ekki valdið sýkingum í fólki. Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því mjög litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

Útbreiðslu fuglaflensu í löndum Evrópusambandsins má sjá á korti ítölsku rannsóknarstofnunarinnar IZSVe, sem er tilvísunarrannsóknarstofa ESB fyrir fuglaflensu, og útbreiðslu í Bretlandi má sjá á korti Animal and Plant Health Agency.

Discussion about this post

  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 84 milljónir eða 215 milljónir – ,,Ekkert annað en opinber glæpastarfsemi“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lægð suður af Reykjanesi – Gul viðvörun vegna veðurs

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Krýsu­vík­ur­vegur lokaður vegna um­ferðaró­happs

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?